Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 72

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 72
ritstjórn og útgáfu félagsbréfs og undir- búning og framkvæmd fræðslufunda og fræðsluferða. Skrifstofa félagsins að Hlemmi 3 (hjá Náttúrufræðistofnun Islands) var opin á þriðjudögum og fimmtudögum flestar vikur ársins. Utbreiðslustjóri sá um félagatal, útsendingu Náttúrufræðingsins og félagsbréfa, innheimtu félagsgjalda og skyld erindi. Ritstjóri Náttúrufræðingsins var Sig- mundur Einarsson jarðfræðingur, sem ráðinn var til upphafs 67. árgangs. Sigmundur sagði starfinu lausu um vorið, þegar hann var ráðinn í fullt starf hjá Umhverfisráðuneytinu. Samið var við Náttúrufræðistofnun íslands í júlí, að hún réði sér starfsmann í samráði við HIN sem annaðist ritstjórn Náttúrufræðingsins. Sem nýr ritstjóri var í ágúst ráðin Alfheiður Ingadóttir líffræðingur, sem tók við ritstjórn frá og með 3.-4. hefti 66. árgangs. Stjórnarfundir voru 8 á milli aðalfunda. Gefin voru út 6 félagsbréf á árinu. Stjórn HÍN hélt þeim sið að senda jólakort vinum sínum og velunnurum og öðrum þeim sem félagið á gott upp að inna. ■ NEFNDIR OG RÁÐ Ýmsar nefndir störfuðu á vegum HÍN á árinu. Snemma árs var heitum útgáfuráðs og ritnefndar Náttúrufræðingsins breytt og var verksviði þeirra breytt lítillega um leið. Útgáfuráðið var nefnt ritstjórn og ritnefndin fagráð. Þeir sem sæti áttu í útgáfuráði og ritnefnd gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í hinum nýju nefndum. Ritstjórn skipuðu Áslaug Helgadóttir grasafræðing- ur, sem var formaður ritstjórnar, Árni Hjartarson jarðfræðingur, Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur, Lúðvík E. Gústafsson jarðfræðingur, Marta Olafs- dóttirframhaldsskólakennari. Auk þeirra sat Hreggviður Norðdahl fundi ritstjórnar sem fulltrúi stjórnar HÍN. Fagráð skipuðu Ágúst Kvaran efnafræðingur, Borgþór Magnús- son gróðurvistfræðingur, Einar Svein- björnsson veðurfræðingur, Guðmundur V. Karlsson framhaldsskólakennari, Guðrún Gísladóttir landfræðingur, Hákon Aðal- steinsson vatnalíffræðingur, Hrefna Sigur- jónsdóttir dýrafræðingur, Ingibjörg Kaldal jarðfræðingur, Leifur A. Símonarson jarðfræðingur, Ólafur K. Nielsen fugla- fræðingur, Ólafur S. Ástþórsson fiski- fræðingur. í ritstjórn Náttúrufræðingatals sat Frey- steinn Sigurðsson, tilnefndur 1991. Útbreiðslunefnd skipuðu Erling Ólafsson, Hreggviður Norðdahl og Sigmundur Einarsson; ferðanefnd Eyþór Einarsson, Freysteinn Sigurðsson og Guttormur Sigbjarnarson; nefnd um skipan náttúru- rannsókna Freysteinn Sigurðsson, Gutt- ormur Sigbjarnarson, Hreggviður Norðdahl og Sigurður S. Snorrason. Umboðsmenn HÍN á náttúrufræðilegum vinnustöðum á höfuðborgarsvæðinu voru um 40 talsins. ■ AÐALFUNDUR Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags fyrirárið 1996 varhaldinn laugardaginn 1. mars 1997, kl. 14-16, í stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Háskólans. Fundarstjóri var Árni Einarsson en fundarritari Jóhann L. Þórsson. Fundinn sóttu 18 manns. VlÐURKENNlNG HIN Formaður félagsins tilkynnti að stjórn HÍN hefði ákveðið að veita Guðmundi Páli Ólafssyni, líffræðingi og náttúrufræðibóka- höfundi, viðurkenningu l'yrir sérlegt framlag til kynningar á náttúrufræði, vegna bóka hans „Fuglar í náttúru íslands“, „Perlur íslenskrar náttúru" og „Ströndin“. Guð- mundur Páll gat ekki verið viðstaddur aðalfundinn, þar eð hann var erlendis, en formaður, varaformaður og framkvæmda- stjóri afhentu honum viðurkenningarskjalið á samkomu í Perlunni 31. maí 1997. Kjor heiðursfélaga HÍN Að tillögu stjórnar var Örnólfur Thorlacius, náttúrufræðingur, einróma kjörinn heiðurs- félagi HIN og sæmdur gullmerki félagsins. Örnólfur þakkaði fyrir sig með vel völdum orðum. 70

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.