Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 5
Frá etnugosi
1991-1993
I suðlægum löndum nœr byggð víða
hátt upp í hlíðar hœttulegra eldfjalla
enda myndast þar frjósamur jarðvegur
á tiltölulega skömmum tíma. Mann-
skepnan má sín þó lítils gagnvart þeim
ógnaröflum náttúrunnar sem losna úr
viðjum í eldsumhrotum. Mest hœtta er
talin stafa af gjóskuflóðum en hraun-
jióð geta einnig valdið talsverðu tjóni,
einkum á mannvirkjum og rœktarlandi.
Hér á landi hafa verið gerðar a.m.k.
tvœr tilraunir til að hafa áhrifá hraun-
rennsli. Árið 1784 tókst séra Jóni Stein-
grímssyni að stöðva framrás Skaftár-
eldahrauns með hjálp almœttisins. í
gosinu á Heimaey 1973 var ýtt upp
varnargörðum úr vikri en þeir létu
fljótt undan hraunstraumnum. Þá var
tekið til við að dœla sjó á hraunið nœst
byggðinni. Með því var jlýtt fyrir
storknun hraunsins og það sjálft látið
mynda einskonar varnarvegg gegn
frekara hraunrennsli í átt að bœnum.
Talið er að með þessum aðgerðum hafi
stórtjóni verið afstýrt. Hér kynnumst
við Etnu á Sikiley og baráttu ítala við
hraunelfi sem stefndi á bœinn Zaff-
e>'ana í Etnuhlíðum þegarfjallið gaus á
árunum 1991-1993.
Richard H. Kölbl (f. 1967) er af þýsku bergi brotinn.
Hann lauk B.S.-prófi í jarðfræði frá Háskóla íslands
árið 1991 0g vinnur nú að doktorsverkefni við
Háskólann í Karlsruhe í Þýskalandi.
Náttúrufræðingurinn 66. (2), bls. 51-62,1997.
tærsta eldfjall Evrópu, Etna á
Sikiley, er hluti af stóru jarðelda-
svæði við Miðjarðarhaf. Eld-
virkni á Islandi tengist nýmyndun
jarðskorpu á jöðrum tveggja jarðskorpu-
fleka, Evrasíuflekans og Norður-Ameríku-
flekans, sem rekur hvorn frá öðrum. Eld-
virknin við Miðjarðarhaf er af öðrum toga.
Hún er afleiðing af árekstri tveggja stórra
jarðskorpufleka, Evrasíuflekans og Afríku-
flekans. Við áreksturinn hafa ýst upp
flóknar keðjur fellingafjalla, einkum norð-
an við Miðjarðarhafið. Allir helstu fjall-
garðar Evrópu eru afleiðing af þessu ferli,
l.d. Pýreneafjöll, Alparnir, Dínaralpar og
Karpatafjöll. Ein fellingafjallakeðjan,
Appennínafjöll, liggur eftir endilöngum
Italíuskaga (1. mynd). Hún sveigir til suð-
vesturs um Sikiley, yfir Miðjarðarhaf og
vestur eftir norðurströnd Afríku og er þar
hluti af Atlasfjöllum í Túnis, Alsír og
Marokkó. Eldvirkni fylgir þessari fjalla-
keðju allt frá eynni Pantellaríu, sem er í
miðju Miðjarðarhafi milli Sikileyjar og
Túnis, og allt norður fyrir Róm. Á þessu
svæði er fjöldi þekktra eldstöðva þ. á m.
Elna, Strombólí, Vúlkan og Vesúvíus (2.
rnynd).
■ ETNA -
„HIN SÍBRENNANDP
Eldfjallið Etna á austurströnd Sikileyjar er
um 3300 m hátt, en sú tala breytist sífellt
vegna stöðugrar gosvirkni í toppgígunum.
51
L