Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 9
6. mynd. Horft til Etnu frá Kataníu. Tindurinn sem er um 3300 m hár er í um 30 km
fjarlœgð frá borginni. Mesta þvermál fjallsins er um 45 km. (Ljósm. J.E. Guest, eftir
Chester o.fl. 1985).
700 m hæð. Mikill hraunstraumur rann frá
Rauðufjöllum alla leið til sjávar og fór
hann yfir allstóran hluta borgarinnar
Kataníu. Áætlað hefur verið að alls hafi þá
komið um 1000 milljón m3 af hrauni
(1 km3), sem er ámóta magn og upp kom í
Heklugosinu 1947. I þessu gosi reyndu
íbúar Kataníu, íklæddir blautum skinnum,
að breyta farvegi hraunsins. Ekki verður
annað séð en þeir hljóti að hafa náð
nokkrum árangri, því íbúar næsta bæjar,
Paternó, sáu að aðgerðirnar leiddu til þess
þeirra eigin bær varð í hættu og réðust því
á Kataníubúa með þeim afleiðingum að
þeint gafst ekki frekara ráðrúm til varnar-
aðgerða og tókst ekki að bjarga Kataníu frá
hrauninu. Sjást þess merki enn í dag og
eru miklar hraunklappir í miðbænum í
Kataníu.
Eldvirknin hefur löngum haft mikil áhrif
á líf fólksins sem býr í Etnuhlíðum. í
^llmiklu gosi sem varð 1983 var í fyrsta
s*nn á þessum slóðum gerð tilraun til að
stýra rennsli hraunár nteð nútímatækni.
Áhöld eru um hvort þær aðgerðir hafi
borið árangur.
■ ELDGOSIÐ 1991-1993
Eftir nokkur smágos á tímabilinu frá sept-
ember 1989 til febrúar 1990 varð hlé á gos-
um í Etnuhlíðum í 21 mánuð. Þá fór að
mælast landris á Etnu og í kjölfarið á
stuttri jarðskjálftahrinu braust út eldgos
um tvöleytið aðfaranótt 14. desember
1991. Tvær gossprungur, alls urn 2 km að
lengd, opnuðust til suðausturs frá botni
Suðausturgígsins í um 3000 m hæð. Önnur
sprungan hafði norðlæga stefnu og gaus
eingöngu ösku og gjalli. Gosið á þessari
sprungu stóð aðeins í fáar klukkustundir.
Hin sprungan hafði suðsuðvestlæga stefnu
og hraun náði að renna 600-800 m frá efri
hluta hennar. Því gosi lauk eftir hádegi
sama dag, en órói f jörðu hélt áfram. Sam-
fara skjálftavirkni rifnaði sprungan áfram
til suðausturs niður að Uxadal (sbr. 10.
mynd) og aðfaranótt 15. desember hófst
eldgos að nýju á dalbrúninni í um 2200 m
hæð. Þar myndaðist gígaröð í allmiklu
ösku- og hraungosi. Mikið hraun flæddi
niður í dalinn og var rennslið talið um 30
m3/sek (meðalrennsli Elliðaánna er um
55