Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 41
1. mynd. Staðsetning þeirra skóglenda á Suðausturlandi, sem hinum nýju íléttutegundum
var safnað í. — The location of the southeastern woodlands, where epiphytic lichens were collected.
athugun meðal annars til þess, að
nokkrar nýjar fléttutegundir fundust til
viðbótar á þessu svæði. Auk þess hefur
Hálfdán Björnsson, Kvískerjum, sent
okkur eina nýja tegund til viðbótar, og
bætt við upplýsingum um útbreiðslu
annarra. Verður hér á eftir nánar greint
frá markverðustu niðurstöðum.
ATHUGUNARSVÆÐIÐ
Alls voru tekin fyrir fimm skóglendi í
þessari könnun: Steinadalur í Suður-
sveit, Viðborðsdalur á Mýrum, innan
við Hoffell í Nesjum, Dalskógar í Lóni
og Austurskógar í Lóni. Staðsetning
þeirra cr sýnd á meðfylgjandi korti (1.
mynd). Kjarrið er yfirleitt lágvaxið og
þétt, aðeins 2 —3 m á hæð, að und-
anskildum Austurskógum í Lóni, þar
sem trén náðu allt að 6 metrum. Þar er
skógurinn einnig gisnari og auðveldari
yfirferðar en á hinum stöðunum. Skil-
yrði fyrir fléttugróður á trjánum virtust
vera einna best í Austurskógum, og var
tegundafjölbreyttnin mest þar og við
Hoffell.
NIÐURSTÖÐUR
Hrúðurfléttur af þessu svæði hafa
ckki verið greindar, og er hér því ein-
ungis fjallað um blað- og runnfléttur.
Af þeim reyndust vera 19 tegundir á
svæðinu, og verður 10 þeirra gerð nán-
ari skil hér á eftir.
183