Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 11
Helgi Torfason: Geysir vakinn upp Geysir í Haukadal er frægastur gos- hvera í veröldinni og af nafni hans er dregið enska orðið „geyser", sem er alþjóðlegt vísindaheiti fyrir gjósandi hveri. Saga Geysis er mjög fjölskrúð- ug og hefst í rituðum heimildum árið 1294, þegar hverasvæðisins er getið í sambandi við jarðskjálfta á Suður- landi. Geysir er frægastur fyrir gosin sem munu hafa náð allt að 70—80 m hæð. í hinum illræmdu Suðurlandsskjálft- um hafa djúpstæðar sprungur hreyfst allt norður til Haukadals, en tjón á eignum mun yfirleitt ekki hafa náð svo langt norðureftir. Eftir jarðskjálftana hefur yfirleitt færst mikið líf í hverina á Geysissvæðinu og ekki hvað síst í gos- hverina sem hafa þá gosið hver í kapp við annan. Oft er minnst á að Geysir hafi gosið myndarlega eftir jarð- skjálfta og gosin komið á 6-8 tíma fresti. Með tímanum hafa rásir hans fyllst af útfellingum, rennsli minnkað og lengri tími liðið milli gosa. Eftir 1915 mun Geysir hafa verið hættur að gjósa þar til í apríl árið 1935 að þeir Trausti Einarsson og Jón frá Laug grófu 50 cm djúpa rauf í norður- barm Geysisskálarinnar. Með því tókst að lífga hverinn svo við að dugði í nokkur ár. Þann 30. ágúst 1935 keypti Sigurður Jónasson, forstjóri Geysi af erlendum aðilum og gaf ís- lenska ríkinu hverinn og hveraspild- una umhverfis. Hafði Geysir þá verið í eigu útlendinga síðan 1894. Ekki mun íslenska ríkið hafa kippt sér mikið upp við þessa rausnarlegu gjöf því það var ekki fyrr en árið 1953 að Geysisnefnd var skipuð. Skyldi nefndin annast endurbætur á svæðinu og sjá þar um framkvæmdir. Að til- hlutan nefndarinnar var boruð 40 m djúp borhola í Strokk árið 1963 og hef- ur hann gosið síðan. Undanfarna áratugi hefur Geysir lít- ið bært á sér og fáir af yngri kynslóð- inni hafa séð hin rómuðu Geysisgos. Jafnvel hefur ekki tjóað að láta sápu í hverinn, þótt slíkt sé oft hið besta gos- meðal. Hefur sumum þótt frægð Geysis koma fyrir lítið síðan hann hætti að gjósa. Líklega'hefur Strokkur óbeint verið verndari Geysis, því gos hans hafa nægt flestum til að dást að og mynda, og fáum hefur dottið í hug að láta bora í Geysi, enda fráleitt að vinna slík náttúruspjöll. Hafa margir beðið þess að jarðskjálftar endurlífg- uðu hverinn. í ársbyrjun 1982 komst það í hámæli að líf hefði færst í Geysi því búið væri að grafa út raufina frá 1935. Þann 30. Náttúrufræðingurinn 53 (1-2), bls. 5-6, 1984 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.