Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 63
ÚTBREIÐSLA OG UPPRUNI
Þóleiít er algengt í öllum þóleiískum
eldstöðvakerfum sem kunn eru hér á
landi, og fylgist hér að dreifing ólivín-
þóleiíts og þóleiíts, sjá 3. mynd í síð-
asta bergtegundaþætti (Sveinn P. Jak-
obsson 1984). Mismikið er þó af þólei-
íti í eldstöðvakerfunum. Af heildar-
framleiðslu þeirra fimm kerfa sem
hafa gosið á nútíma á Reykjanesskaga
er um 16,6% rúmmáls þóleiít, en
78,5% ólivínþóleiít (Jón Jónsson
1978). Mun meira er af þóleiíti í öðr-
um hlutum miðgosbeltisins, og laus-
lega áætlað eru um 30% alls þess bergs
sem gosið hefur á nútíma þóleiít. Hlut-
ur þóleiíts er mun meiri í kvarterum og
tertíerum jarðmyndunum, þannig má
ætla að nálægt 50% alls gosbergs
landsins sé þóleiít (Carmichael 1964,
og ýmsar nýrri heimildir).
í gosbeltunum eru flestöll hraun,
sem mynduð eru við sprungugos,
þóleiít. Auk Skaftáreldahrauns má
nefna Grindavíkurhraun, Kapellu-
hraun og Hellisheiðarhraunin á
Reykjanesskaga; Þjórsárhraun og öll
Tungnárhraunin í eystra gosbeltinu;
Öskjuhraun, Nýjahraun (1875) og
Leirhnúks- og Kröfluhraunin í norður-
gosbeltinu.
Þóleiíthraunin eru misjafnlega
mikil, allt frá því að vera smábleðlar
eins og sum Öskjuhraunin, í það að
vera firnastór hraun líkt og Þjórsár-
hraun og Skaftáreldahraun. Þjórsár-
hraun yngra (THb) er eitt lengsta
hraun sem vitað er um frá nútíma,
lengd þess er um 130 km frá upptökum
nálægt Hófsvaði í Tungná fram í sjó
hjá Eyrarbakka (Elsa Vilmundardóttir
1977).
Skiptar skoðanir hafa verið um upp-
runa þóleiíts. Flestir bergfræðingar
eru nú þeirrar skoðunar, að þóleiít sé
ekki frumbráð, þ.e. að ekki sé um að
ræða bergkviku sem hafi myndast
beint við hlutbráðnun möttulefnis,
heldur sé þetta bergkvika, sem orðið
hafi fyrir töluverðum breytingum á
TAFLA II. Yfirlit yfir helstu greiningareinkenni á ummynduðu þóleiísku basalti. Flokk-
un G. P. L. Walker (1959), byggt á yfirliti Ágústs Guðmundssonar o.fl. (1982).
Berggerð Kornaslærð Veðrunarhúð og veðrunarform Straumflögun Holufyllingar og sprungufyllingar
Dílabasalt (þ.e. plagíóklasdílótt þóleiískt ba- salt); 3= 5% plag. dílar Fínkorna, kristallar oftast sýnilegir í grunnmassa Oft brúnleit; brúnir ávalar Oftast lítil straumflögun Geislasteinar og kalsít algengt
Ólivín basalt (þ.e. ólivín- þóleiít og sumt þóleiít) Fín- til millikorna, kristallar vel sýnilegir Brúnleit; brúnir ávalar Lítil straum- flögun, stöku sinnum flögótt Geislasteinar og kalsít algengt
Þóleiít basalt (þ.e. þóleiít) Fínkorna til dulkorna, á mörkum þess að kristallar séu sýnilegir Oftast gráleit veðrunarhúð; brúnir hvassar Oft mikil straumflögun; klofnar gjarnan í > 2 cm þykkar flögur Geislasteinarog kvarts algengt
57