Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 13
Andrew J. Dugmore
og
Paul C. Buckland:
Vatnabjallan Oreodytes
sanmarki (Sahl.) (Col.,
Dytiscidae), fundin á íslandi.*
INNGANGUR
Óvíða á íslandi er skordýralífið eins
vel þekkt og undir Eyjafjöllum, frá
Markarfljóti austur að Vík í Mýrdal.
Svíinn Carl H. Lindroth safnaði
skordýrum víða á þessu svæði á árum
áður (Lindroth 1931). Einnig kom
Geir Gígja þar víða við (sjá t.d. Lars-
son & Geir Gígja 1959). Þá var svæðið
kannað ítarlega í tengslum við rann-
sóknir í Surtsey (Lindroth o.fl. 1973).
Árið 1980 fóru fram rannsóknir á
skordýraleifum í jarðvegssniðum að
Stóruborg undir Eyjafjöllum, sam-
hliða fornleifarannsóknunt (Guðrún
Sveinbjarnardóttir o.fl. 1980, Buck-
land o.fl. 1982). Sama ár safnaði annar
höfunda (AJD) skordýrum á allmörg-
um stöðum undir Eyjafjöllum. Voru
einkum notaðar fallgildrur (sjá South-
wood 1978) til þess að fá hlutfallslegan
fjölda skordýra til samanburðar við
niðurstöður úr jarðvegssniðunum
(Dugmore, í undirbúningi). Erfiðara
var að kanna hlutfallslegan fjölda
vatnalífvera. Sýni voru tekin með háf
* Þýtt af Erling Ólafssyni.
úr nokkrum tjörnum og lækjum og
hlutfallslegur fjöldi lífvera áætlaður
gróflega.
í flestum pollum, þar sem gróður
var að finna, var lækjaklukka (Hy-
droporus nigrita (Fabr.)) algeng.
Einnig var brunnklukku (Agabus so-
lieri (Aub.)) þar að finna, en þó í
minni mæli. Hins vegar fannst græn-
landsklukkan (Colymbetes dolabratus
(Payk.)) hvergi, en hún er þó útbreidd
um landið.
Þann 13. júlí (1980) var könnuð
tjörn vestan við svonefndan Jökulhaus
við sporð Sólheimajökuls. Tjörn þessi
er um 20 m löng, 10 nt breið og 1.5 m
djúp. Þarna fundust fjögur eintök
vatnabjöllutegundar, sem var nokkru
stærri en lækjaklukka. Hún var auk
þess með greinilegt litmynstur á
skjaldvængjum. Einnig fundust fjöl-
margar lækjaklukkur í tjörninni,
nokkrar brunnklukkur og lirfur tjarna-
títu (Arctocorisa carinata (Sahl.)).
Þessar vatnaklukkur voru síðar ákvarð-
aðar til tegundarinnar Oerodytes san-
marki (Sahl.) (= O. rivalis (Gyll.)).
Þann 2. ágúst 1981 var tjörnin
Náttúrufræðingurinn 53 (1-2), bls. 7-12, 1984
7