Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 80

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 80
þessu verkefni. Hentugt samheiti er vandfundið fyrir allar tegundir sem í hlut eiga. Það stafar af ólíku hátterni þeirra. Það eru einkum þrjú atriði sem verður að athuga í þessu sambandi: (1) hversu algengar tegundirnar eru hér á landi, (2) á hvaða árstíma þær sjást og (3) hvort þær hafi einhvern tímann orpið hér. Mörgum er tamt að nota heitin flækingsfuglareða flæking- ar, en þessi hugtök henta þó í raun aðeins einum tegundahópanna, sem að vísu er langstærstur. Til þess hóps teljast tegundir sem slæðast hingað fyrir slysni, oft í kjölfar vissra veður- skilyrða. Þessir fuglar eru gjarnan nefndir öðrum nöfnum, s. s. farand- fuglar, flökkufuglar eða hraknings- fuglar. Annan flokk skipa fuglar sem koma hingað á haustin en hverfa til heim- kynna sinna að vori, að því að talið er, þ. e. svonefndir vetrargestir. Skil á milli vetrargesta og flækingsfugla eru oft óljós. Vetrargestum á íslandi má skipta í tvo hópa. Annar þeirra telur fugla, sem verpa ekki hér að öllu jöfnu, en til hans eru venjulega taldar færri en 10 tegundir. Sem dæmi má nefna fjöruspóa (Numenius arquata), gráhegra (Ardea cinerea) og svartþröst (Turdus merula). í hinn hópinn falla tegundir sem eru varpfuglar hér á landi og vekja komur þessara vetrar- gesta því ekki eins mikla athygli. Sem dæmi um vetrargesti frá norðlægum slóðum má nefna hávellur (Clangula hyemalis), auðnutittlinga (Acanthis flammea), hvítmáfa (Larus hyperbore- us) oghaftyrðla (Allealle). Síðasttalda tegundin er mun algengari við ísland að vetrarlagi en sem varpfugl. Þá koma starar (Sturnus vulgaris) og skógarþrestir (Turdus iliacus) frá Evr- ópu og dvelja hér. Fuglar í fyrri hópn- um munu fá umfjöllun, en ekki þó bjartmáfur (Larus glaucoides) enda mjög algengur hér sem vetrargestur. Ekki verður fjallað um vetrargestina sem eru í seinni hópnum. í þriðja flokknum eru fuglar sem fara um landið reglulega vor og haust, á Ieið til og frá varpstöðvunum. Þetta eru svokallaðir fargestir sem einnig eru nefndir umferðarfuglar eða um- ferðarfarfuglar. Sumar þessara teg- unda eru mun algengari á íslandi vor og haust en margar íslensku varpteg- undirnar. Sem dæmi um fargesti má nefna blesgæs (Anser albifrons), mar- gæs (Branta bernicla), sanderlu (Cali- dris alba) og rauðbrysting (C. canut- us). Fargestum verður öllum sleppt, nema helsingja (Branta leucopsis), en hann hóf að verpa hér á Iandi á síðari árum. Oft er erfitt að gera greinarmun á fargestum og flækingsfuglum. Fjall- kjói (Stercorarius longicaudus) og ís- kjói (S. pomarinus) eru oft taldir til flækingsfugla, en líklegra er, að þeir fari hér um reglulega, þó sjaldgæfir séu, og þá teljast þeir frekar fargestir. I hóp fargesta falla einnig ýmsar tegundir sem líka eru varpfuglar á ís- landi. Sem dæmi má nefna sendling (Calidris maritima), steindepil (Oen- anthe oenanthe) og snjótittling (Plect- rophenax nivalis). Þessir fuglar fara um Iandið á ferð sinni milli varpstöðv- anna og vetrarheimkynna. Þeim verð- ur sleppt. Nokkrar fuglategundir koma hingað til lands á sumrin og standa komur þeirra í sambandi við árlegt flakk þeirra utan varptíma. Þessa fugla má kalla sumargesti og fylla þeir fjórða flokkinn. Gráskrofa (Puffinus griseus) og hettuskrofa (P. gravis) falla í þenn- an flokk, en þær verpa á suðurhveli jarðar og dveljast á norðurhvelinu meðan vetur er á suðurslóðum. Eins og áður er getið, hafa um 15 fuglategundir orpið á íslandi en verpa 74
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.