Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 91
FRÆÐSLUFERÐIR
Sumarið 1982 voru að venju farnar fjór-
ar fræðsluferðir til náttúruskoðunar, þrjár
eins dags ferðir og ein þriggja daga ferð.
Þátttakendur í ferðunum urðu alls 194.
Ferðirnar voru þessar:
1. Sunnudag 4. júlí var farin steinaferð í
Hvalfjörð, og skoðaðir nokkrir staðir auð-
ugir að holufyllingum. Þátttakendur voru
54 og náttúrlega fór ekki hjá því að margt
fyndist eigulegra steina. Leiðbeinendur
voru þeir Axel Kaaber og Kristján Sæm-
undsson.
2. Föstudag 23. -25. júlí var langa ferð-
in farin, að þessu sinni vestur s. k. línuveg
Landsvirkjunar. Lagt var upp í húðarrign-
ingu og vegna óvissu um ástand vegarins
og ánna austan Hvítár var þeinr áfanga
sleppt en ekið beint að skála FÍ nærri
Hagavatni og tjaldað til tveggja nátta. Dag-
inn eftir var gengið að Hagavatni og inn
með því og skoðaðir langskurðir af mó-
bergsfjöllum, fornar jökulöldur og lóna-
myndanir auk ummerkja um síðasta fram-
skrið Hagafellsjökuls eystri. Nokkrir
gengu á Stóru-Jarlhettu. Veður var
dáindisgott þennan dag og hélst svo fram
yfir miðjan dag þess 25., en þann dag var
farið heim vestur eftir línuveginum og
komið á þjóðveg neðan við Dragháls.
Þoka byrgði allt útsýni á kaflanum norðan
við Hlöðufell og Skjaldbreið, en aftur fór
að létta til er komið var vestur á Uxa-
hryggi. Alls tóku 60 manns þátt í ferðinni.
Aðalleiðsögumaður var Kristján Sæm-
undsson, og honum til trausts og halds
Leifur A. Símonarson.
3. Sunnudag 22. ágúst var farin fjöru-
ferð í Herdísarvík í fegursta veðri og
skoðað lífríki fjörunnar. Þátttakendur í
þeirri ferð voru 30. Leiðbeinendur voru
Karl Gunnarsson og Erlingur Hauksson.
4. Sunnudag 5. september var farin jarð-
fræðiferð austur í Rangárvallasýslu til að
skoða jarðskjálftasprungur. Var byrjað við
Selsund og síðan haldið vestur í Land-
sveit. Leiðsögumaður var Páll Einarsson
og þátttakendur í ferðinni 50.
Ber að þakka öllum sem aðstoðuðu
stjórnina við skipulagningu og framkvæmd
ferðanna. Bílar voru sem fyrr fengnir hjá
Guðmundi Jónassyni.
ÚTGÁFUSTARFSEMI
Af tímariti félagsins Náttúrufræðingnum
komu út 2 hefti á árinu alls 144 bls. Þetta
voru 1-2 hefti og 3 hefti 51. árgangs. Má
segja að lítið hafi farið fyrir þeim ásetningi
félagsstjórnar að ná upp árinu sem útgáfa
Náttúrufræðingsins er á eftir tímanum.
Nokkurt áhyggjuefni er það ritstjórn tíma-
ritsins hversu treglega gengur að heimta
inn efni. Má það raunar teljast undrunar-
efni miðað við allan þann fjölda náttúru-
fræðinga sem hér starfa ef borið er saman
við það sem áður var.
FJÁRHAGUR
Reikningar félagsins sýna góðan fjárhag
fyrir síðasta reikningsár, kannske um of
góðan því að árgjöld síðasta árs voru við
það miðuð að saxa á seinkun Náttúrufræð-
ingsins, en þar fór á annan veg en til var
stofnað.
FLÓRA ÍSLANDS
Undirbúningi 4. útgáfu Flóru hefur ver-
ið haldið áfram síðastliðið ár. Unnið hefur
verið að endurskoðun tegundalýsinga,
endurskoðun ákvarðanalykla og voru
nokkrir þeirra reyndir úti í náttúrunni.
Ennfremur var haldið áfram að afla ná-
kvæmra upplýsinga um útbreiðslu teg-
unda, ekki síst þeirra sem taldar eru al-
gengar. Þessu verður haldið áfram með
svipuðum hætti næsta sumar og næsta vet-
ur, en þá ætti að vera farið að styttast í, að
hægt verði að byrja að setja bókina.
85