Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 16
GREININGARLYKILL Gísli Már Gíslason (1977) birti greiningarlykil yfir íslenskar vatna- bjöllur. Hér er sá lykill lagfærður með tilliti til O. sanmarki: 2 Ristarliðir fram- og miðfóta fjórir. Hyrna sést ekki. 5 — Ristarliðir fram- og miðfóta fimm. Hyrna sést. 3 5 Hálsskjöldur sléttur, án hvilfta til hliðanna. Grunnlitur dýrsins svart- ur, hálsskjöldur og skjaldvængir með þéttum smáholum. Dýrið nán- ast jafnhliða, 2.8—3.2 mm að lengd. Hydroporus nigrita — Línulaga hvilft á hliðum hálsskjald- ar. Grunnlitur ljósbrúnn, með mis- mörgum dekkri línum eða blettum á skjaldvængjunum, sem hafa aðeins fáar og dreifðar smáholur. Dýrið nánast sporöskjulaga, 2.5—3.0 mm að lengd. Oreodytes sanmarki UMRÆÐA Ýmsar spurningar vakna, þegar ný og frekar auðgreinanleg vatnabjöllu- tegund finnst á aðeins einum stað á íslandi. Þetta er sambærilegt við fund tjarnaklukkunnar (Agabus uliginosus L.), sem fundist hefur tvívegis í sömu tjörninni í Berufirði, árin 1935 og 1977 (Larsson & Geir Gígja 1959, Gísli Már Gíslason 1977). Ekki verður séð af jarðvegssniðunum, hvort um er að ræða leifar af áður víðtækari út- breiðslu í þessum tveimur tilfellum. Tjarnaklukkunni virðist alla vega hafa vegnað vel í þeirri einu tjörn, sem hún hefur fundist í. Ekkert bendir til þess, að hún hafi slæðst þangað af manna- völdum og verið þar aðeins um tak- markaðan tíma. Tjörnin við rætur Sólheimajökuls, þar sem O. sanmarki fannst, hefur myndast á síðustu 40 árum, eftir að jökullinn hörfaði. Um þessar mundir virðist jökullinn vera að skríða fram og á því e.t.v. eftir að eyðileggja tjörnina innan tiltölulega fárra ára. Vatnabjöllur eru þó flestar nokkuð hreyfanlegar, þótt útbreiðslan virðist takmörkuð í þessu tilfelli. Gera má ráð fyrir, að dýrin geti flutt sig yfir í tjörn með svipuðum skilyrðum. Ýmsar skordýrategundir hafa borist til landsins af mannavöldum á undan- förnum áratugum, og sumar þeirra hafa fundið sér hentug lífsskilyrði í skjóli ýmissa athafna mannsins (sjá t.d. Erling Ólafsson 1979). O. san- marki er tiltölulega sjaldgæf í Evrópu, og ekki er vitað til þess, að einstakling- ar tegundarinnar sveimi, eins og t.d. maríuhænur, og berist þannig með vindum út fyrir heimkynni sín (sjá Erl- ing Ólafsson 1976). Ýmsar fiðrilda- tegundir berast til landsins með vind- um (Erling Ólafsson & Hálfán Björns- son 1976), einnig drekaflugur (Mik- kola 1968, Erling Ólafsson 1975). Þá er mjög ólíklegt að O. sanmarki hafi borist til íslands með skipum, enda er Sólheimajökull langt frá höfnum, sem millilandaskip fara um. Allt bendir því til þess, að tegundin sé innlend. Við viljum því halda, að O. sanmarki sé hluti af þeirri skordýrafánu, sem nam landið eftir ísöld. Aukið ferskvatns- rennsli í Norður-Evrópu í lok ísaldar og ísjakar, sem borið hafa með sér jarðveg, kunna að hafa stuðlað að flutningi plantna og dýra til íslands (sbr. Coope 1979, Buckland o.fl. 1981). Að lokum ber þess að geta að tvö 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.