Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 51

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 51
4. mynd. „Hryggjarliðatal" 3 þorskkrypplinga úr ísafjarðardjúpi, sjá einnig á hliðstæðum röntgenmyndum. Hver reitur táknar einn hryggjarlið, dökku reitirnir merkja skemmda liði, hálfskyggðir reitir tákna lítið skemmda liði. - Spondylogramme (schematische Darstellungen des Baues der Wirbel) 3 verkriippelter Dorsche von der Bucht „ísajarðar- djúp“. Die missgebildeten und verkurzten Wirbel sind schwarz, die normalen Wirbel hell dargestellt. ljós mjög alvarlegar skemmdir á, hryggjarliðum (sjá 3. mynd B og C) sem eru mjög svipaðs eðlis og fundist hafa hjá krypplingum eða dvergvöxn- um fiskum víða erlendis. Margir liðanna eru samanþjappaðir og á rönt- genmynd koma þessir gölluðu liðir miklu skýrar fram heldur en heil- brigðir liðir, eða liðir í hrygg heilbrigðs fisks (3. mynd A). Þetta sýnir að óeðlilega mikið kalk eða steinefni hafa sest í liðina. Skemmdir þessar koma ýmist fram á bol eða stirtluliðum eða hvoru tveggja, (sjá hryggjarliðatal á 4. mynd). Allir hryggjarliðir 54 að tölu virðast vera til staðar, en dæmi eru um það erlendis frá að nokkra liði vanti hjá fiskum sem hafa hliðstæða galla og krypplings- vöxt. Af þeim 3 fiskum sem skoðaðir voru og höfðu skemmdan hrygg voru 10.,19. og 23. liðir skemmdir. Eins og sést á myndunum og liðatalinu er ým- ist missmíði á mörgum liðum í röð, eða nokkrir gallalausir liðir koma inn á milli þeirra skemmdu. í beinu framhaldi af þessari umræðu er viðeigandi að víkja að vansköpun á fiskum almennt og tíðni slíkra ágalla. Ýmis vanskapnaður, missmíði, eða lýti eru vel þekkt hjá fiskum sem öðr- um lífverum. í þessari grein ætla ég að halda mig við beina vansköpun, þ. e. þegar beinagrindin sjálf er úr lagi gengin. Undir orðinu vanskapnaður skiljum við beinlínis það, að lífvera hafi komið vansköpuð í heiminn. Þessu er einnig þannig farið hjá fiskum að oftast má rekja missmíði á beina- grind beint aftur til egg- eða fóstur- skeiðs. Slíkir gallar virðast þó geta komið fram síðar á ævinni hjá fiskum (þótt það sé sjaldgæfara). Af þessum sökum velti ég þeirri spurningu nokk- uð fyrir mér hvort nefndir dvergfiskar í Djúpinu hefðu ekki sýnt sjúkdóms- einkenni fyrr en þeir voru að komast á annað aldursár. Allir sjómenn kannast við ýmsa af- myndun á fiskum. Hjá þorski (og reyndar hjá ýsu og fleiri þorskfiskum) eru þrjár gerðir af vanskapnaði býsna algengar. Þær eru: útlitsgallar á haus, dverg- eða krypplingsvöxtur og bækl- uð og bogin stirtla (sjá 1. mynd). Er þá talið upp í þeirri röð að byrjað er á þeirri „bæklun“ er mér virðist al- gengust og endað á þeirri óalgengustu. Tíðni slíkra tegunda vanskapnaðar segir þó næstum örugglega meira til um hversu alvarleg „örorkan" er fyrir fiskinn og þar með lífs- og afkomu- 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.