Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 54

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 54
fiska. Vansköpun á stirtlu, mjög áþekk því sem sést hjá ýmsum þorsk- fiskum og fleiri sjávarfiskum, er al- geng hjá eldisfiskum svo sem regnbogasilungi og mun framkölluð af gródýri (Sporozoa) Myxoxoma cerebralis, einfruma Iífveru er tilheyrir frumdýrum (Protozoa) (E. Amlacher 1961). Þá eru svonefndir „fiskberkl- ar,“ sem orsakast af bakteríum, al- gengir hjá fiskum í vatnabúrum og geta meðal annars leitt til skemmda og missmíða á hryggsúlu og höfuð- beinum. Eftir því sem ég kemst næst geta slíkir sjúkdómar herjað á vatnafiska, með meðfylgjandi van- sköpun, á hvaða aldursskeiði sem er. Lítið virðist hins vegar vitað í smá- atriðum um orsakir slíks vanskapnað- ar hjá sjávarfiskum, en talið að í flest- um tilfellum sé um umhverfisorsakir að ræða svo sem eitur-, efna-, eða næringarsjúkdóma. Mjög algengt er að slíkur vanskapnaður sjáist á fiskum í búrum, bæði hjá fersk- og sjávarfisk- um, og er oft sagður orsakast af óeðli- legu umhverfi, en undir slíkri skil- greiningu geta leynst margir þættir. Par sem vanskapnaður og ágallar hjá fiskum lýsa sér oftlega á sama hátt (sbr. þorskkóngar) hafa sumir vísinda- menn nefnt til erfðagalla sem orsaka- vald. Að hluta til má réttlæta slíkar útskýringar, en þær hafa þó sínar tak- markanir. Hér virðist sjaidnast um að ræða ágalla er erfast milli kynslóða og koma fram með vissri tíðni, burtséð frá öllum áföllum eða sjúkdómum. Miklu fremur sýnist hér vera um að ræða áhrif sjúkdóma eða umhverfis sem brjótast fram eða lýsa sér á sama hátt hjá sömu tegund. Þótt áhrif t. d. skorts eða eitrunar lýsi sér þannig tíð- um eins hjá þorski og séu þar með að einhverju leyti bundin við litninga og erfðaeiginleika, virðist það aðeins ein- földun, frekar en „skýring" að kenna að tengja framköllun slíkra sjúkdóma við erfðirnar einar. Uti í sjálfri náttúrunni, t. d. í sjón- um, geta umhverfisþættir orðið óeðli- legir á margan hátt. Talið er að næringarskortur og þá um leið skortur á D vítamíni geti leitt til missmíða sem þeirra er hér um ræðir. Selta getur verið of lág, eða súrefnismagnið í sjón- um of lítið, svo dæmi séu nefnd. Þann- ig er staðfest að innarlega í Eystra- salti er margskonar vanskapnaður á fiski miklu algengari en utar í sama hafi, og er lágu seltustigi um kennt. Nýjasti orsakavaldurinn er svo mengun. Geta ýmis „kemísk“ efni, þungmálmar, eða annað óeðlilegt sem í sjóinn rennur, átt hér hlut að máli. Wunder (1971, 1975), hefur tekið eftir og athugað sífellt aukin tilfelli af sjúk- legum vanskapnaði (krypplingar með samanrekna hryggsúlu) hjá þorski og augnasíld (Alosa fallax) á grunnsævi undan hafnarborgum í Þýskalandi. Sjúkdómseinkennin virðast mjög svip- uð og gerðist hjá hinum dvergvöxnu þyrsklingum í ísafjarðardjúpi. Wund- er hefur sett þennan vanskapnað í samband við mengum frá áðurnefnd- um borgum. í öllum tilfellum var talið að sjúkdómseinkenna væri að leita aft- ur til fósturskeiðs, enda það skeið í lífi fisksins mjög viðkvæmt og mengunin til staðar strax á fósturskeiði fisksins. Ólíklegra er talið að slík efnamengun hafi afgerandi áhrif á vöxt eða útlit uppkominna fiska. Wunder og Bu- hringer (1977) benda þó á dæmi um eldissilung, sem orðinn var nokkurra ára gamall, er vatnssamsetningin í kerjunum breyttist af óviðráðanlegum ástæðum. Þegar fiskurinn fór að ná kynþroska tók að gæta krypplings- vaxtar (hryggjarliðaskemmdir) og þessi dvergvöxtur var rakinn til áður- nefndra umhverfisáhrifa er fiskurinn 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.