Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 78
auðugt að kalki. Annað spursmál er
svo hversu almennt þetta skeður og
hvort þarna er eitthvað sérstakt að
verki, sem tengist skipsflakinu. Sé
svona steypa umhverfis allt flakið má
ætla að það varðveitist sem næst um
aldur og ævi. Nokkur stórhlaup hafa
orðið í Skeiðará frá þeim tíma er hér
um ræðir og í sambandi við gos á
Grímsvatnasvæðinu. Kann þaðan að
hafa borist efni, sem skýrt gæti þessa
myndun?
Samsetningu sandsins á þessum stað
má nokkuð ráða af töflunni hér á eftir.
Gerðar voru þunnsneiðar af lausum
sandi og steintegundir í honum taldar.
Taldir voru 5143 punktar og varð ár-
angurinn þessi:
Tafla I. Punkttalning í þunnsneið úi
Skeiðarársandi. - Modal composition of
sand from 12 m depth in Skeiðarársandur,
5143 points.
Plagioklas 13,7%
Pyroxen 7,4
Ólivín 0,48
Sideromelan (gosgler) 51,4
Málmur (ógegnsætt efni) 20,0
Súrt gler (líparítgler) 2,3
Myndbreytt gler 4,2 99,48%
Um gosglerið er það að segja, að
það er án efa mestmegnis gosaska.
Myndbreytta glerið á vafalaust rætur
að rekja til móbergsins og litlausa
(súra) líparítglerið er aska, sem senni-
lega er einkum komin frá gosinu mikla
í Öræfajökli 1362, enda eru vikur-
molar enn að berast um ströndina.
Nýmyndun steinda í sandi er ekki
nýtt fyrirbæri í skaftfellskum söndum.
Þess varð vart í borkjarna, sem tekinn
var á Hoffellssandi sumarið 1951.
Ekki er þar um kalsít að ræða og ekki
hefur enn verið um þá myndun fjallað.
Það sem mesta undrun vekur, er hvað
þetta hefur skeð á skömmum tíma og
við þau skilyrði, sem þarna ráða. Hita-
stig er vafalaust sem næst 4°C á þessu
dýpi í sandinum og á 12-14 m dýpi er
þrýstingur,sem ekki sýnist líklegur að
skipta máli í þessu samhengi. Svari nú
þeir sem geta.
SUMMARY
Authigenic
calcite in
Skeiðarársandur
by
Jón Jónsson
National Energy Authority
Grensásvegur 9
108 Reykjavík
A rather extensive search for the wessel
Het Wapen van Amsterdam, which was
wrecked on Skeiðarársandur in September
1667, has been carried out during the last
several years. Aided by magnetic measure-
ments a wreck was localized in October
1981. By excavations in 1983 it was found
to be a trawler, supposed to be the Ger-
man trawler Albert Friedrich which
stranded in 1903. Now the wreck is at a
depth of 12-14 m in the sand and appoxi-
mately 120 m from the coast. During the
excavation process pieces of sandstone
were found, evidently formed at the sur-
face of the ship and seem to cover at least a
part of the wreck with a layer of 2—4 cm
thickness (fig. 1). The sand is firmly
cemented by an authigenic calcite forming
fan-shaped crystals (fig. 2). No other
secondary minerals were observed and
nothing indicates replacement of other
minerals by the calcite. The modal com-
position of the sand outside the wreck is
shown in Table I.
72