Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 101
cradle of man, 5. Monitoring the earths
heartbeat og 6. The cataclysm of St.
Helens. - Ritgerðirnar eru: Earthly awe-
some engines of creation, The many faces
of vulcan, Inside the inferno: How volca-
noes work, “The place where hell bubbles
up”, The fiery ordeal of Heimaey (mest
myndir) og The scars of the holocaust.
Ég held að fáum leiðist að lesa þessa
bók, og þeir sem eitthvað hafa gluggað í
eldfjallabókmenntir munu líklega ekki
hafa fengið eins skemmtilega sagt frá frum-
kvöðlum í eldfjallafræði og hér. Óhætt er
að mæla með þessari bók fyrir þá sem hafa
áhuga á góðri, skemmtilegri og fræðandi
bók um eldfjöll, sögu þeirra og hamfarir.
VOLCANOES
R. Decker og B. Decker
W.H. Freeman and Company
San Francisco, 1981, 244 bls.
Bókin Volcanoes lýsir eldfjöllum, hegð-
un þeirra, eldgosum og af hverju þau eru
talin gjósa. Höfundar bókarinnar eru jarð-
fræðingar og strax þar skilur á milli með
þeirri bók sem sagt var frá hér á undan.
Þau Decker og Decker hafa farið víða og
fylgst með og rannsakað eldfjöll og eldgos.
Meðal annars hafa þau komið til íslands og
fjallar einn kaflinn um gosið í Surtsey
1963-1967. Efni bókarinnar er skipt í
fimmtán kafla og ekki skaðar að lesandinn
kunni eitthvað fyrir sér í jarðfræði, þótt
allir geti trúlega tileinkað sér meginefni
bókarinnar. Bókin er sérhverjum holl og
góð lesning og er stíllinn langt frá því að
vera þungur.
Bókin skiptist í eftirfarandi kafla: 1.
Seams of the earth, 2. Surtsey, lceland, 3.
Fire under the sea, 4. Krakatau, West of
Java, 5. Ring of fire, 6. Kilauea, Hawaii, 7.
Hot spots, 8. Lava, ash and bombs, 9.
Cones and craters, 10. Roots of volcanoes.
11. Origin of sea and air, 12. Volcanic
power, 13. Volcanic trasures, 14. Volca-
noes and climate, 15. Forecasting volcanic
eruptions. Auk þess er „Glossary" eða
orðaskrá og þrír viðaukar og er sá fyrsti
þeirra „The worlds 101 most notorious
volcanoes" stutt lýsing á eitthundrað og
einu eldfjalli.
Fyrsti hluti bókarinnar (kafli 2—6) er
stutt lýsing á nokkrum völdum eldgosum,
sem sum hafa haft afdrifaríkar afleiðingar í
för með sér, bæði fyrir líf þeirra sem þar
bjuggu og fyrir fræðin. Seinni hluti bókar-
innar lýsir einstökum atriðum í eldfjalla-
fræðinni, svo sem gígum, ösku og vikri,
ógn eldfjallanna, gagnsemi þeirra og eld-
fjallaspám.
Kafli 2. er greinagóð lýsing á eldgosinu í
Surtsey 1963-1967, hvernig eyjan byggð-
ist upp af hafsbotni og hraunaskjöldur
varði hana síðan ágangi sjávar. ísland
kemur nokkrum sinnum við sögu í bókinni
og í viðaukanum um „heimsins hundrað og
eitt hrikalegasta eidfjall" er getið um
Öskju, Grímsvötn, Heimaey, Heklu,
Kröflu, Laka og Surtsey. Mér hefði nú
þótt sæma að hafa Öræfajökul með í þessu
„kompaníi“, því hann er ekki beint
friðsamlegur þegar hann fer að byrsta sig.
í heild er bókin fremur auðlesin, en ekki
eins skemmtileg og Volcano. Engar lit-
myndir eru í þessari bók en allar skýringar-
myndir og ljósmyndir eru góðar og lýsa vel
þeim fyrirbrigðum sem textinn greinir frá.
Margar bækur eru til sem eru álíka upp-
byggðar og þessi og fullt eins góðar, en of
langt yrði að telja þær allar upp hér. Óhætt
er að mæla með þessari bók fyrir þá sem
vilja fræðilegri bók en Volcano.
VOLCANOES OF THE WORLD
T. Simkin, L. Siebert, L. McClelland,
D. Bridge, C. Newhall og J.H. Latter
Útgefin af Hutchinson Ross Publishing
Company fyrir Smithsonian Instutution
Stroudsburg, Pennsylvania, 1981, 233 bls.
Bókin Volcanoes of the world er einstök
í röðum þeirra bóka sem fjalla um eldfjöll.
Á aðeins rúmum 200 blaðsíðum eru upp-
lýsingar um 5564 eldgos í 1343 eldfjöllum.
Efni bókarinnar er tvískipt. Fyrstu 27 blað-
síðurnar eru texti þar sem lýst er fyrri
athugunum og skýrðar eru út þær töflur
sem mynda síðari hluta bókarinnar. Þessi
síðari hluti bókarinnar (bls. 33—214) er
95