Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 17
4. mynd. Samanburður á rúmmáli Þjórsár-
hraunsins og annarra stærstu hrauna og vik-
urgeira á Islandi. Búrfellshraunið sem um
er að ræða er Búrfellshraun á Landmanna-
afrétti. Vafalítið eru til hraun hér á landi
sem eru stærri en það, en afar fáar góðar
rúmmálsmælingar eru til á íslenskum
hraunum. - Comparative sizes ofthe biggest
lavaflows and tephra layers in Iceland. The■
Búrfell lava is the second largest one in the
Veiðivötn volcanic system. Several lava
flows not seen in the graph, have a volume
between 9 and 6 km3. H3 and H4 are the two
most voluminous Hekla tephra layers (in
dense rock equivalents).
Heimildir um stasrðirIReferences:
Þjórsárhraun: Árni Hjartarson 1985.
Skjaldbreiður: Guðmundur Kjartansson 1966 a.
Trölladyngja: Þorleifur Einarsson 1968.
Skaftáreldahraun: Þorleifur Einarsson o. fl. 1984.
Eldgjá: Guðrún Larsen 1979.
Búrfellshraun: Guðrún Larsen & Elsa G. Vilmund-
ardóttir 1986.
H3: Guðrún Larsen & Sigurður Þórarinsson 1977
(súr gosaska umreiknuð í fast berg).
H4: Guðrún Larsen & Sigurður Þórarinsson 1977
(súr gosaska umreiknuð í fast berg).
inu hættulegir keppinautar hvað varðar
gosefnaframleiðslu. Árið 1815 gaus eld-
fjallið Tambora í Indónesíu mesta stór-
gosi sem sögur fara af og þeytti þá upp úr
sér meira en 150 km3 af gosösku. Hér
verður þó að geta þess að líklega má
deila í rúmtak öskunnar með 2 eða 3 til
að fá út samsvarandi magn hraunkviku.
Fyrir 75.000 árum spjó annað Indónes-
ískt fjall, Toba, úr sér 1000 km3 af súrri
ösku. í þeim gosmekki hverfa hin for-
sögulegu stórgos í Heklu í skuggann, og
Þjórsárhraunið sýnist smátt.
GERÐ HRAUNSINS
Þjórsárhraunið er dæmigert sprungu-
hraun. Hraunið hefur víðast runnið fram
í einum samfelldum straumi. Ekki verð-
ur vart við beltaskiptingu í því nema á
stöku stað út til jaðranna. Athyglisvert
er hvernig það virðist smeygja sér inn í
hvern krók og kima þar sem það hefur
flætt fram. Þrátt fyrir umtalsverða þykkt
virðist það hafa verið tiltölulega þunn-
fljótandi. Hin ótrúlega víðlenda og slétt-
lenda hrauntunga sem breitt hefur úr sér
í Flóanum sýnir þetta best. Eftir að hafa
11