Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 38
50 mm 1
2. mynd. Vatnamýs úr Hádegisvatni í Bitrufirði. Kúlurnar eru á mismunandi myndunar-
stigum, sú til vinstri aflöng og væntanlega yngst. - False lake balls from Lake Hádegisvatn,
NW Iceland, presumably of different age, since differing in form and firmness. (Ljósm./
photo Erling Ólafsson).
Pambárvalla í Bitrufirði, Strand. 12.
september 1969. Alls fundust níu kúlur
saman á vatnsbotninum við bakkann.
Stærð þeirra er: 59 x 54 x 27 mm, 58 x
54 x 22,58 x 49 x 23, um 56 x 30 x 17,
44 x 36 X 34, 42 x 37 x 32, 35 x 26 x
23, um 32 x 27 x 16 og 29 x 26 x 14
mm.
Stærðarmælingarnar voru gerðar í
október 1986. Þeim er aðeins ætlað að
gefa nokkra hugmynd um stærð vatna-
músanna, sem sumar höfðu aflagast lít-
ið eitt við geymslu.
Bergþór Jóhannsson, mosafræðing-
ur, greindi þær tegundir mosa, sem
vatnamýsnar eru myndaðar úr. Þó er
tekið fram, að þær voru ekki skornar í
sundur til að kanna hvað væri innan í.
Þar gætu því verið um fleiri tegundir
mosa að ræða, eða önnur myndunar-
efni. Kúlurnar frá Holtavörðuvatni eru
myndaðar úr mosa af tegundunum
Drepanocladus aduncus (Hedw.)
Warnst. og D. revolvens (Sw.)
Warnst., en Bryum pseudotriquetrum
(Hedw.) Gaertn. & al., Pohlia wahlen-
bergii (Web. & Mohr) Andr. og Meesia
uliginosa Hedw. eru einnig til staðar.
Vatnamýsnar úr Hádegisvatni eru
einkum úr mosanum Drepanocladus
exannulatus (B., S. & G.) Warnst. en
einnig Calliergon sarmentosum (Wah-
lenb.) Kindb. og Racomitrium fascicul-
are (Hedw.) Brid. Allar þessar tegund-
ir, nema sú síðastnefnda, finnast þar
sem er rekja, og gætu því hafa vaxið á
vatnsbökkunum (Bergþór Jóhanns-
son, munnl. uppl.). Vatnamýsnar hafa
væntanlega myndast á þann hátt, að
mosaflyksur féllu í vatn og veltust um á
botninum eða upp við bakkana vegna
strauma og ölduhreyfinga en við það
orðið ávalar.
32