Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 57
bókinni, þar af eru 18 teiknaðar af Eggert
Péturssyni, tvær af Gunnari H. Ingimund-
arsyni og ein af þeim báðum. Efnið í
myndirnar er sótt til ýmissa höfunda, þó
er helmingur myndanna byggður á hug-
myndum Ara Trausta, sem einnig hlýtur
að teljast ábyrgur fyrir faglegri ráðgjöf um
útfærslu á innihaldi hinna myndanna. Um
handbragð Eggerts kann ég ekki vel að
dæma, en mér virðist það vera þokkalegt.
I einu tilviki hefur láðst að ljúka mynd-
inni. Þetta á við mynd á bls. 119, en þar
vantar pennateikninguna, sem er í sniðinu
sjálfu, inn á útskýringarfletina. Litir
myndanna leyfa þó að lesið sé úr henni,
svo þetta er ekki alvarleg yfirsjón. Hlutur
Gunnars í skýringarmyndunum er gerð
einfaldra pennateikninga, sem hann hefur
leyst vel af hendi.
Þessum myndum er það sameiginlegt,
að þeim er ætlað að útskýra ýmis jarð-
fræðileg fyrirbæri og ferli, sem erfitt er að
gefa glögga mynd af með orðum einum.
Það verður ekki sagt hið sama um þessar
myndir og kortin, að vel hafi tekist til. Það
eru alvarlegir vankantar á um það bil
helmingi skýringarmyndanna. Vankatnar
þessir hafa það í för með sér að myndirnar
gefa ranga mynd, falska og ófullnægjandi.
Þær standa því illa undir nafni sem skýr-
ingarmyndir. Tökum nokkur dæmi: Á bls.
14 er mynd, SV-NA snið gegnum Island
eftir gosbeltunum, sem sýna ástandið í
möttli jarðar undir landinu og samband
kvikumyndandi svæða í möttlinum og
eldvirkninnar á yfirborði. Lagskiptingin í
myndinni er illa útskýrð. Hvað tákna mis-
munandi litir og línur? Ef lesa á út úr
þessari mynd, t.d. hvernig stendur á eld-
virkni í Vestmannaeyjum, verður ekki
annað séð en að þar undir sé kvikuhólf,
líklega í möttli, sem er fullt af kviku og
ótengt öðrum hlutum möttuls eða skorpu.
í þessu hólfi verður kvikan því til úr þeim
efnum, sem þar eru til staðar. Þessi kvika
berst síðan til yfirborðs í gosum. Hvernig
þetta kvikuhólf endurnýjast verður ekki
lesið út úr myndinni. Myndin gefur ranga
hugmynd, sýnir ekki það sem henni er ætl-
að. Hún gefur í hæsta lagi í skyn, en það
eiga skýringarmyndir alls ekki að gera. Á
bls. 21 er þrívíddarmynd, sem á að sýna
ástandið í jarðskorpunni undir „miðbiki
eldstöðvakerfis" og samband þess sem þar
er að finna við yfirborð jarðar og þau fyr-
irbæri sem þar eru. Sama gildir hér og í
fyrri myndinni. Litirnir eru ekki nægilega
vel útskýrðir. Hvað t.d. táknar grái litur-
inn umhverfis þann bleika í jarðskorp-
unni? Myndin gefur í skyn en segir ekki.
Almennt eru talin vera tengsl á milli
myndunar askja í megineldstöðvum og
þróunar kvikuhólfa undir eldstöðvunum.
Hér er kvikuhólf teiknað utan við og til
hliðar við öskjuna í eldstöðinni. Ef þetta
er vísvitandi gert, er hér um að ræða nýja
túlkun í jarðfræði svona eldstöðva og slík
nýjung ætti auðvitað að vera vandlega
rædd í textanum, en svo er ekki í þessu
tilviki. Þetta hlýtur því að vera galli í gerð
myndarinnar. Á bls. 34 er önnur þrívídd-
armynd, sem sýnir kvikukerfið undir
Kröflu og samband þess við yfirborð. Á
yfirborði myndarinnar liggur gossprungan
sjálf í frambrún myndarinnar. Þegar kem-
ur niður á dýpi hefur hins vegar gos-
sprungan horfið af framhliðinni, en þar er
komið eitt kvikuhólf, þrjú innskot og flók-
ið kerfi örva, sem sýna eiga hvernig kvik-
an flyst milli staða. Á norðurvegg myndar-
innar liggur gossprungan töluvert inni í
fletinum og er það ótengd undirliggjandi
kvikulagi. Það er augljóst af þessari mynd,
að kunnáttu í gerð þrívíðra mynda er eitt-
hvað áfátt í þeirri smiðju, sem þessa fram-
leiddi. Ferðaleiðir kvikunnar eru hér ákaf-
lega margræðar, jafnvel svo flóknar að
leiðirnar skerast. Svona flókin mynd
stendur varla undir nafninu útskýring. Á
bls. 78 er enn ein þrívíddarmynd. Þessi á
að útskýra eldgos á Veiðivatnasvæðinu.
Kvikuhlaup úr norðaustri kemur eftir
sprungu í jarðskorpunni og veldur eldgosi
í Veiðivötnum, þar sem gýs basaltkviku.
Kvikuhlaupið heldur áfram til suðvesturs
og veldur öðru gosi, nú inni á Torfajök-
ulssvæðinu, þar sem gýs súrri bergkviku.
En hvaðan kemur súra kvikan? Ef hún á
að koma úr kvikuhólfinu undir Torfajök-
ulssvæðinu, þá sést það ekki af myndinni.
Hún sýnir rauða kviku í allri gossprung-
unni og rauð kvika er basalt kvika, eins og
sést á merkingu í kvikuhólfinu, en þar er
súr kvika gul. Myndin sýnir að gula kvikan
51