Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1959, Qupperneq 8

Náttúrufræðingurinn - 1959, Qupperneq 8
2 NÁTT ÚRU F RÆÐIN G U RIN N Nú vitum við að í úrani og þóri er iólgin orka, sem hægt er að hagnýta í kjarnorkuverum, og að orkuforði þessi er margfalt meiri en allur sá orkuforði, sem fólginn er í kola- og olíubirgðum jarð- arinnar. Enda þótt úran og þór séu engan veginn meðal hinna al- gengari efna í jarðskorpunni, er líklegt að orkuforði þeirra geti fullnægt orkuþörf mannkynsins mjög fengi, jafnvel um ófyrirsjá- anlega framtíð. Þetta hindrar þó ekki að stöðugt er skyggnzt um eftir nýjum leiðum til orkuvinnslu, leiðum, sem e. t. v. kunna að reynast hentugri og iiagkvæmari en þær gömlu, þegar fram í sækir. Það hefur lengi verið vitað, að til eru tvær hugsanlegar leiðir til þess að leysa úr læðingi orku þá, sem bundin er í atómkjörnunum. Önnur er að kljúfa sundur þunga atómkjarna, eins og t. d. úran- og þórkjarna, hin er að sameina létta atómkjarna, svo að þeir renni saman og myndi þyngri kjarna. Þannig geta t. d. tveir kjarnar þungs vetnis runnið saman og myndað helíumkjarna, en samfara sam- runanum er mikil orkumyndun. Enda þótt í einum lítra af venju- legu vatni séu aðeins 30 milligrömm af þungu vetni, þá er orkan, sem í því er bundin, svo mikil, að það jafnast á við heila tunnu af benzíni. Allt þungt vetni, sem finnst í öllum höfum heims, jafn- gildir þannig orkuforða, sem er þúsund milljón sinnum meiri en orkan, sem bundin er í öllum kola- og olíubirgðum jaiðar. En það er ekki nóg að orkan fyrirfinnist, það þarl einnig að finna ráð til þess að losa hana. Hvað benzínið snertir er þetta til- tölulega auðvelt. Það þarf ekki annað en að blanda það lofti og hita upp í nokkur hundruð gráður, þá kviknar í því. Til þess að „kveikja í“ þunga vetninu, þ. e. a. s. til þess að koma af stað samruna vetn- iskjarnanna, þarf aftur á móti að hita það upp í nokkur milljón eða jafnvel nokkur hundruð milljón gráður, sem er meira en hit- inn í miðju sólar. Svona hitastig fást þó við kjarnorkusprengingar, og sé þungu vetni komið fyrir í venjulegri kjarnorkusprengju, get- ur hitinn nægt til að „kveikja í“ því, en sprengingin breiðist þá á svipstundu um allt vetnið, þar sem hitastigið hækkar enn meira við samruna vetniskjarnanna. Slíkar vetnissprengjur geta' Adfið hundruðum eða þúsundum sinnum sterkari en venjulegáT kj'ái'ri- orkusprengjur, allt eftir því, hve mikið er í þeim af þúhgiil7ýétíj'i. Vetnissprengjan hefur sýnt, svo ekki verður um vilb.tv'áð f va'frii er að finna óþrjótandi orkulind, en aðferðum þeiriP/^Míí ttbtáðár
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.