Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 14
8 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 0>-: ©^0^ ©- ©-© > SEGUL- SVIÐ 5. mynd. Sterkt segulsvið verkar sem veggur á hreyf- ingar plasma-agnanna þvert á stefnu segulsviðsins, sem hér veit beint inn í blaðið. sterka sviðinu og leita aftur þangað, sem sviðið er veikara. Sterkt segulsvið verk- ar því að vissu leyti sem veggur gagn- vart plasmanu og getur hindrað út- breiðslu þess. Með því að vinda rafleiðslu utan um aflangt hylki og senda straum í gegnurn liana, má fá segufsvið, sem hefur sömu stefnu og hylkið. Þetta segulsvið getur varnað því að plasma, sem myndast inni í hyfkinu, snerti hliðar þess. Endarnir eru þó óvarðir, þar sem plasmað getur hreyft sig óhindrað í stefnu segulsviðsins, en með því að gera segulsviðið sterkara til endanna, má fá megnið af plasma-ögnunum til að snúa við áður en þær rekast á enda ílátsins. Hvað verkanirnar snertir má hér líkja segulsviðinu við ílát, enda þótt ekkert efni sé í veggjum þess, eins konar flösku með tappa í báðum endum, en ef til vill lekur þó eitthvað með töppunum. 6. mynd. Segulflaska. Rafstraumur í þræðin- um, sem undinn er ut- an uni hylkið, skapar >egulsvið inni í hylkinu og heldur plasmanu frá hliðum þess. Plasma- agnirnar hreyfast óhindrað í stefnu seg- ulsviðsins, en með því að gera það sterkara við endana, má fá þær til að snúa við áður en þær rekast á vegginn. Á mvndinni sjást kraftlínur segulsviðsins, því þéttari sem sviðið er sterkara. Það er þó engan veginn eins auðveft að meðhöndla plasma í segulflösku eins og loft í venjulegri flösku. í samskiptum plasmans og segulsviðsins kemur fram óstöðugleiki og sveiflur af ýmsu tagi, sem ekki hefur ennþá tekizt að sigrast á nema að litlu feyti. Hér er þó fundin aðferð til þess að hafa áhrif á plasmað, án þess að það þurfi að snerta nokkurn hlut. Með segulsviði er hægt að liefta út- breiðslu þess, þrýsta því saman eða beina lireyfingum þess í ákveðn-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.