Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 16

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 16
10 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN auk þess er erfitt að koma í veg fyrir að eitthvað af ögnum plasm- ans sleppi út að veggjum ílátsins, sem það er í, og kólni þar, en aðrar ,,kaldar“ agnir komi frá veggnum og blandist plasmanu og kæli það. Til þess að halda við plasma-ástandinu til lengdar þarf því stöðuga upphitun. Æskilegast virðist að snögghita plasmað upp í svo hátt hitastig að kjarnbreytingarnar geti tekið við og séð um áframhaldandi upphitun. Þegar því stigi er náð er upphitunin ekki lengur neitt vandamál, en þá ríður á að geta stjórnað hreyfingum plasmans og varnað því að það rekist á veggi ílátsins. Tœki til plasmarannsókna. Enda þótt plasmarannsóknirnar séu mjög nýjar af nálinni, hefur þó verið smíðaður fjöldi rannsóknatækja á þessu sviði. Upplýsing- ar um mörg af þessum tækjum voru fyrst birtar síðastliðið haust á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um friðsamlega hagnýtingu kjarn- orkunnar, sem haldin var í Genf. Mörg af þessum tækjum voru þar til sýnis, eða líkön af þeim. Hér verður ekki reynt að lýsa öll- um þessum margvíslegu tækjum, heldur aðeins drepið á helztu gerðirnar. 7. mynd. Sterkur rafstraumur í þunnu gasi skapar um sig segulsvið, sem þrýstir straumnum og gasinu saman í mjóan plasmaþráð. Viðleitnin til þess að skapa mjög há hitastig hófst ekki fyrir al- vöru fyrr en í byrjun þessa áratugs, og það er ekki fyrr en allra síðustu árin, að nokkuð verulegt hefur orðið ágengt á þessu sviði. Fyrstu tilraunirnar byggðust á því að senda mjög sterkan rafstraum á milli tveggja skauta í gegnum þunnt gas. Straumurinn hitar loft- ið og breytir því í plasma. En rafstraumurinn skapar einnig um sig sterkt segulsvið, sem þrýstir plasmanu saman í mjóan þráð. Við samþjöppunina eykst hitastig plasmans, en plasmaþráðurinn

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.