Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
13
SPENNUBREYTIR TIL SEGULDELA TIL
RAFSTRAUMSHITUNAR UPPHITUNAR
skeður hér ekki með rafstraum nema að litlu leyti, og rafstraumur
í plasmanu sjálfu er hér ekki virkur þáttur í því að þjappa því sam-
an. Segulsviðið, sem heldur plasmanu frá veggjunum, er hér fram-
leitt með því að senda rafstraum í gegnum þráð, sem undinn er um
hylkið. í hylkinu er þungt vetnisgas, sem fyrst er hitað upp og breytt
í plasnra með því að senda rafstraum í gegnum það. Aðal upphitun-
in fer þó frarn á annan liátt: Á einum stað er þráðarspóla undin um
hylkið, en í gegnurn hana er sendur riðstraumur. Straumur þessi
skapar breytilegt segulsvið inni í hylkinu og dælir stöðugt orku til
plasmans. Á þennan hátt ætti að mega halda plasmanu á háu hita-
stigi í langan tíma. Nokkur tæki af þessu tagi hafa verið smíðuð, en
jafnframt hafa konrið í ljós erfiðleikar, sem þurfti að yfirstíga, svo
sem það, að loft losnaði úr veggjunr hylkisins og kældi plasmað, og
einnig að segulsviðið hélt plasmanu ekki nægilega vel frá veggj-
um hylkisins. Síðastliðið haust liafði liitastigið í tækjum þessum
ekki ennþá náð miljón gráðum, en þeir, sem fást við smíði þeirra,
telja sig þó komna yfir erfiðasta hjallann og gera sér jafnvel vonir
um að ná yfir 100 milljón gráðu hita í tæki, sem byrjað var að smíða
síðastliðinn vetur og verður væntanlega tilbúið á næsta ári. Plasma-
liylkið er hér aðeins 20 cm. í þvermál og lengdin um 8 m.
Hæsta hitastig, sem vitað var um s. 1. haust að framleitt hefði
verið í nokkru tæki, var um 15 milljón gráður. Þetta met átti lítið
og einfalt tæki, sem smíðað var í Los Alamos í Bandaríkjunum.