Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 31 brennandi sólargeislum og draga úr útgufun, auk þess að vera til varnar. Margir kaktusar bera mjög litfögur blóm, stór eða smá. Sitja blómin venjulega einstök á rifjum eða vörtum og stundum á end- um stönglanna. Þegar blómin springa út, verður mikil breyting á. í 11 mánuði standa, heldur óhrjálegir, þyrnóttir kaktusklumpar á þurrum, grýttum hásléttunum og í hamragiljum t. d. í Mexikó. Svo kemur vorið og frá því í marz og fram á sumar þekjast kakt- usarnir marglitu blómaskrúði og bera þá líklega skrautlegri liti en flestar aðrar plöntur í víðri veröld. Sum kaktusblómin eru 12— 18 cm í þvermál og helmingi lengri en það. Mörg eru trektlaga, önnur eins og víðar skálar. Blómblöðin eru fjölmörg og renna skar- latsrauðir, purpurarauðir, gulir og hvítir litir saman í blómunum. Inni í blómunum skarta fjöldamargir gulir fræflar; þrjú þúsund í Sahuaró — risakaktusblómi. Blóm kaktusanna eru birtunæm. Sum eru aðeins útsprungin fáeina klukkutíma, eða einn dag, en önnur springa út á nóttunni og fylla eyðimerkurnóttina ilm sínum. Þann- ig er því varið með ýmsar nætui'blómgandi blyskaktusa, Gereus- tegundii'. J. }. Thornber og F. Bonker hafa lýst næturblómgun kaktus- anna þannig: „Þú verður að koma út í eyðimörkina í tunglskini, þegar mjúkir skuggar leika um jörðina, ef þú vilt njóta hinnar himnesku fegurðar þessarra undursamlegu blóma. Aðeins eina nótt á ári opnast blóm Cereus-Greggi-kaktusins allt í einu og senda frá sér þvílíkan sætan ilm, að umhverfið verður anganþrungið á margra kílómetra svæði. Þegar skuggarnir fara að lengjast og aftanroðinn tekur að dökkna, byrja blómin að opnast hvert á fætur öðru. Þau eru alveg útsprungin svo sem klukkutíma síðar, maður getur bein- línis séð blómin hreyfast og breiða úr sér. Þau virðast titra, ýtt opnum af innra afli. Af blómunum leggur hinn ljúfasta ilm jafn- skjótt og þau fara að springa út. Þúsundir Indíána og hvítra manna streyma að til að líta hið undursamlega sjónarspil kaktusnætur- innar, brúðkaup hundraða eða þúsunda hinna vaxhvítu blóma. Um sólarupprás, eða a. m. k. árdegis næsta dag, taka hin goðfögru blóm að lokast og eru venjulega alveg lokuð kl. 9—10 í heiðskíru veðri.“ Útbreiðsla kaktusanna er merkileg. Frumheimkynni þeirra er í Vesturheimi, einkum í Mexikó og suðvestanverðum Bandaríkj-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.