Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 40
34 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Af fíkjukaktusum (Opuntia) munu vera til um 250 tegundir og eru þeir útbreiddasta ættkvísl kaktusanna. Vaxa sumir þeirra lengst norður allra kaktusa. Nokkrar tegundir eru ræktaðar í kaktusgörð- um og margar sem ágæt þyrnigerði í Mexxkó og suðvestur Banda- ríkjunum. Vaxa sumar þeirra allört. Sumir fíkjukaktusar eru næsta stórvaxnii', aðrir klifra eða skríða við jörð. Hinn nytsami Nopal- fíkjukaktus líkist reglulegu tré í vexti og vei'ður allt að 5 m. á hæð. Indíánar o. fl. eta aldin hans hrá og gei'a einnig úr þeim kaktusost, sýróp og te. Stönglai'nir etnir soðnir. Tré-kaktusinn (Cholla) var fluttur til Ástralíu. Þar kunni hann vel við sig og breiddist út svo gríðarlega, að hann er orðinn að skæðasta „illgresi" og kallaður „reipi djöfulsins". Margir smáir kaktusar teljast til ættkvíslar vörtukaktusa (Mam- millaria). Eru margar þeirra ræktaðar í görðum hlýrra landa og sem stofublóm í norðlægum löndum. Sumir þeirra eru aðeins fáir cm. á hæð, oft hnöttóttir eða hnútóttir, og vaxa oft í þéttum þyrp- ingum eða haugum. Um 200 tegundir. Taldir að sumu leyti hafa náð lengst á þróunarbrautinni, eiu m. a. alveg blaðlausir. Ræktaðir eru í gluggum ýmsir fagurvaxnir vörtukaktusar, sem oft eru nærri hnöttóttir á unga aldri, en vet'ða síðar aflangir eða eins og sívaln- ingar, alsettir yddum, strendum eða sívölum vörtum í gonnsnún- um röðum. Blómin spietta í lægðunum milli vartanna. Það eru mörg en fremur smá ýmislega lit dagblóm. M. bocasana er hvítloð- inn með langa, öngulbogna þyrna í hárinu. Sumir bera hvíta stjörnuþyrna. Til ígulkaktusa (Echinocactus) teljast margar tegundir. Eru sumar kúlumyndaðar, alsettar lxvössum þyrnum og bera margir liverjir toppstæð stór og fögur blóm. Nokkrir ræktaðir í stofum. En til eru líka rnjög stórvaxnar tegundir ígulkaktxxsa. T. d. verður „Kaliforníu Barrel“ nærri 3 m á liæð og 30—40 cm í þvermál. Stærstur mun vera Bisnagakaktusinn í Mið Mexíkó. Hann verð- ur 2—3 m á hæð, metri eða meir í þvermál og vegur allt að fjögur þúsund pund. Talinn geta oiðið um þúsund ára gamall. Þessir ígul- kaktusar eru merkilegir fyrir margra hluta sakir. „Vinur ferða- mannsins og áttaviti eyðimerkurinnar‘ ‘ (The Travellers Friend) er einhver hinn frægasti þeirra. Hægt er að svala þorsta sínum á safa ýmissa ígulkaktusa og er „vinur feiðamannsins“ í suðvestui-Arizona kunnastur þeirra. Menn taka blátoppinn af hinum súlulaga kakt-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.