Náttúrufræðingurinn - 1959, Qupperneq 40
34
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Af fíkjukaktusum (Opuntia) munu vera til um 250 tegundir og
eru þeir útbreiddasta ættkvísl kaktusanna. Vaxa sumir þeirra lengst
norður allra kaktusa. Nokkrar tegundir eru ræktaðar í kaktusgörð-
um og margar sem ágæt þyrnigerði í Mexxkó og suðvestur Banda-
ríkjunum. Vaxa sumar þeirra allört. Sumir fíkjukaktusar eru næsta
stórvaxnii', aðrir klifra eða skríða við jörð. Hinn nytsami Nopal-
fíkjukaktus líkist reglulegu tré í vexti og vei'ður allt að 5 m. á hæð.
Indíánar o. fl. eta aldin hans hrá og gei'a einnig úr þeim kaktusost,
sýróp og te. Stönglai'nir etnir soðnir. Tré-kaktusinn (Cholla) var
fluttur til Ástralíu. Þar kunni hann vel við sig og breiddist út svo
gríðarlega, að hann er orðinn að skæðasta „illgresi" og kallaður
„reipi djöfulsins".
Margir smáir kaktusar teljast til ættkvíslar vörtukaktusa (Mam-
millaria). Eru margar þeirra ræktaðar í görðum hlýrra landa og
sem stofublóm í norðlægum löndum. Sumir þeirra eru aðeins fáir
cm. á hæð, oft hnöttóttir eða hnútóttir, og vaxa oft í þéttum þyrp-
ingum eða haugum. Um 200 tegundir. Taldir að sumu leyti hafa
náð lengst á þróunarbrautinni, eiu m. a. alveg blaðlausir. Ræktaðir
eru í gluggum ýmsir fagurvaxnir vörtukaktusar, sem oft eru nærri
hnöttóttir á unga aldri, en vet'ða síðar aflangir eða eins og sívaln-
ingar, alsettir yddum, strendum eða sívölum vörtum í gonnsnún-
um röðum. Blómin spietta í lægðunum milli vartanna. Það eru
mörg en fremur smá ýmislega lit dagblóm. M. bocasana er hvítloð-
inn með langa, öngulbogna þyrna í hárinu. Sumir bera hvíta
stjörnuþyrna.
Til ígulkaktusa (Echinocactus) teljast margar tegundir. Eru
sumar kúlumyndaðar, alsettar lxvössum þyrnum og bera margir
liverjir toppstæð stór og fögur blóm. Nokkrir ræktaðir í stofum.
En til eru líka rnjög stórvaxnar tegundir ígulkaktxxsa. T. d. verður
„Kaliforníu Barrel“ nærri 3 m á liæð og 30—40 cm í þvermál.
Stærstur mun vera Bisnagakaktusinn í Mið Mexíkó. Hann verð-
ur 2—3 m á hæð, metri eða meir í þvermál og vegur allt að fjögur
þúsund pund. Talinn geta oiðið um þúsund ára gamall. Þessir ígul-
kaktusar eru merkilegir fyrir margra hluta sakir. „Vinur ferða-
mannsins og áttaviti eyðimerkurinnar‘ ‘ (The Travellers Friend) er
einhver hinn frægasti þeirra. Hægt er að svala þorsta sínum á safa
ýmissa ígulkaktusa og er „vinur feiðamannsins“ í suðvestui-Arizona
kunnastur þeirra. Menn taka blátoppinn af hinum súlulaga kakt-