Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 47

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 47
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 41 Ný jurtateguncl við flugvöllinn í Reykjavik. Sumarið 1957 fann Gunnlaugur Jónsson, bókari, nýja tegund, þorskamunn (Linaria vulgaris) nálægt flugvellinum. Skoðaði ég fundarstaðinn um miðjan ágúst sumarið 1958. Voru þá nokkur eintök með blómum, 20—30 cm há. Fleiri munu liafa blómgazt árið áður. Þessi þorskamunnur er snotur jurt, beinvax- in, með mjó, alljréttstæð blöð. Blómin eru með langan hunangsspora, krónan er gul með appelsínugulrauðu gini, og Jjví rnjög sér- kennileg. Jurtin breiðist lit með rótarsprot- um. Hefur ekki fundizt fyrr hér á landi. Vex víða um Evrópu, bæði á grýttum stöðum og sem illgresi á ökrum. Var fyrrum ræktuð til skrauts á Norðurlöndum. Linaria vulgaris Ingólfur Davíðsson. Félagatal Hins íslenzka náttúrufrœðifélags. í þessu hefti birtist félagatal Hins íslenzka náttúrufræðifélags, eins og það var um síðustu áramót, en samkvæmt lögum félagsins skal félagatal birt 5. hvert ár. Ennþá eru ijölda margir kaupendur að Náttúrufræðingnum, sem ekki liafa gerzt félagsmenn. Má vera að margir þeirra óski þó að ganga í félagið. Nti eru allir félagsmenn góðfúslega beðnir að aðgæta, livort nöfn Jteirra standa í félagatalinu og livort þau eru rétt skráð. Ennfrem- ur er þess óskað, að þeir áskrifendur Náttúrufræðingsins, sem ekki eru skráðir í félagatalinu, en vilja gerast félagar, tilkynni það sem fyrst. Allar slíkar viðbætur og leiðréttingar við félagatalið sendist til ritstjóra eða afgreiðslumanns tímaritsins í pósthólf 846, Reykja- vík. Það skal sérstaklega tekið fram, að árgjald í félaginu er hið sama og áskriftargjald Náttúrufræðingsins, og þar sem félagsmenn fá ritið ókeypis, leiðir engan aukinn kostnað af inngöngu í félagið. Sigurður Pétursson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.