Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 47
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
41
Ný jurtateguncl við flugvöllinn í Reykjavik.
Sumarið 1957 fann Gunnlaugur Jónsson,
bókari, nýja tegund, þorskamunn (Linaria
vulgaris) nálægt flugvellinum. Skoðaði ég
fundarstaðinn um miðjan ágúst sumarið 1958.
Voru þá nokkur eintök með blómum, 20—30
cm há. Fleiri munu liafa blómgazt árið áður.
Þessi þorskamunnur er snotur jurt, beinvax-
in, með mjó, alljréttstæð blöð. Blómin eru
með langan hunangsspora, krónan er gul með
appelsínugulrauðu gini, og Jjví rnjög sér-
kennileg. Jurtin breiðist lit með rótarsprot-
um. Hefur ekki fundizt fyrr hér á landi. Vex
víða um Evrópu, bæði á grýttum stöðum og
sem illgresi á ökrum. Var fyrrum ræktuð til
skrauts á Norðurlöndum.
Linaria vulgaris
Ingólfur Davíðsson.
Félagatal Hins íslenzka náttúrufrœðifélags.
í þessu hefti birtist félagatal Hins íslenzka náttúrufræðifélags,
eins og það var um síðustu áramót, en samkvæmt lögum félagsins
skal félagatal birt 5. hvert ár. Ennþá eru ijölda margir kaupendur
að Náttúrufræðingnum, sem ekki liafa gerzt félagsmenn. Má vera
að margir þeirra óski þó að ganga í félagið.
Nti eru allir félagsmenn góðfúslega beðnir að aðgæta, livort nöfn
Jteirra standa í félagatalinu og livort þau eru rétt skráð. Ennfrem-
ur er þess óskað, að þeir áskrifendur Náttúrufræðingsins, sem ekki
eru skráðir í félagatalinu, en vilja gerast félagar, tilkynni það sem
fyrst. Allar slíkar viðbætur og leiðréttingar við félagatalið sendist
til ritstjóra eða afgreiðslumanns tímaritsins í pósthólf 846, Reykja-
vík. Það skal sérstaklega tekið fram, að árgjald í félaginu er hið
sama og áskriftargjald Náttúrufræðingsins, og þar sem félagsmenn
fá ritið ókeypis, leiðir engan aukinn kostnað af inngöngu í félagið.
Sigurður Pétursson.