Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
37
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Litur Sólarhæð
90° 30° 19.°3 | 7°.3 við hafsbriiu
Rautt 0.95 0.91 0.86 ' 0.66 0.107
Blátt 0.74 0.54 0.40 0.09 0.000
Fjólublátt 0.51 0.25 0.13 0.00 0.000
Sólargeislar alls 0.84 0.70 0.59 0.21 0.002
loftið þrungið reyk og ryki, sem hindrar og rýrir sólarmagnið,
svo að það nýtur sín miklu miður heldur en á bersvæði. En af
þessu leiðir, að stórborgarloftið hefir óholl og lamandi áhrif á
lífverurnar, en landloftið og einkum fjallaloftið, sem er ríkara
af efnavirkum og sóttverjandi geislum, hressir og fjörgar. í
sumum lítt byggðum heimskautalöndum er loftið svo gerilsneytt,
að þar grefur aldrei í sái'i, hv.ernig sem með er farið, og kvef fá
menn ekki, hve mikilli vosbúð, sem þeir mæta. Það er því mjög
þýðingarmikið að velja heilsuhælum stað þar, sem vel nýtur
sólar og loftið er að jafnaði tært. Mörg heilsuhæli í Alpafjöll-
unum hafa þessa kosti í ríkum mæli. Glóðaljós af rafmagni hafa
að miklu leyti sömu geislaverkun og sólarljósið og eru því
notuð við ljóslækningar.
Mælingar á geislamagni sólarinnar eru vandasamar og þarf
til þeirra dýr og viðkvæm mælingatæki. Hér á landi hafa slíkar
mælingar ekki heldur verið gerðar svo teljandi sé. í N-átt eða
eftir norðlæga átt, er loftið hér oft mjög tært og frábært skyggni
sem kunnugt er. í slíku veðurlagi myndi geislamagn sólarinnar
reynast tiltölulega mikið, einkum af útfjólubláum geislum.
Dr. F. Dannmeyer frá Hamborg mældi útfjólubláa geisla
norður í Aðalvík sumarið 1927. 1 júní það ár voru sólskinsstundir
í Reykjavík 268, en í Hamborg 194. Dr. Dannmeyer telur mæling-
ar sínar einnig benda til þess, að geislamagn útfjólublárra geisla,
bæði frá sólunni sjálfri og einkum frá loftinu í heild, sé mun meiri
hér á landi heldur en á öðrum stöðum víðsvegar um heim, sem
hann tekur til samanburðar. Þar á meðal er hið fræga hressingar-
hæli Davos í Sviss í 1560 m. hæð.
Þessar mælingar ná yfir of stutt tímabil til þess að réttmætt
sé að byggja á þeim víðtækar niðurstöður. En þær gefa samt sem
áður bendingar um merkilegt og ónumið rannsóknarefni, sem
bæði snertir veðurfræði og lífsskilyrði dýra og jurta hér á landi.