Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 48
42 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
III1111111111111111111111111111111111111111IIIIII li 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111IIIII1111111111111111111111111111111111111
við bæinn. Þetta kemur vitanlega ekki til greina á Borgum, og því
er mér nær að halda, að tölurnar þaðan gefi fullt eins rétta hug-
mynd um sólfarið í skammdeginu eins og þær, sem gilda fyrir
Rvk. Hákon telur aðeins meira með af daufu sólskini, sem mælir-
inn sýnir ekki. Þá mun og bjartviðri vera nokkru tíðara undir
suðurhlíðum Vatnajökuls að vetrinum, heldur en á Suðurlandi.
I allri vestanátt er t. d. allajafna bjart veður þar eystra, en sól-
far er þá að minnsta kosti stopult suðvestan lands.
Þetta efni verður nú ekki meira rakið í sundur að sinni. En
sá samanburður, sem gerður hefir verið, ætti að nægja til þess að
sýna, að athuganir Hákonar á Borgum fé vel staðizt; að þær hafa
verið gerðar af vandvirkni, og hafa fræðilegt gildi, en eru honum
sjálfum til sóma. Jón Eyþórsson.