Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 50
44 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN (11111II111111111111II1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 111111111111 ■ 1111111111111111111111111111111111111II1111111111 heimsdreifðar tegundir, eða heimsdreifðar ættir. Af slíkum ætt- um mætti nefna leðurblökurnar og jafnvel rotturnar meðal spendýranna, en endur, svölur, dúfur og uglur meðal fuglanna. Það er frekar sjaldgæft að tegundir æðri dýra séu heimsdreifð- ar, en þegar um allra lægstu dýrategundir, eins og til dæmis frumdýrin er að ræða, má nærri því svo að orði kveða, að þau séu vanalega heimsdreifð. Á hinn bóginn eru til fjölda margar dýrategundir, sem hafa mjög takmarkaða útbreiðslu, slíkar teg- undir kalla fræðimenn endemiskar, á íslenzku gætum við nefnt þær staðbundnar. Sem dæmi um slíkar tegundir, mætti nefna eðlutegund eina, sem aðeins á heima á nokkrum klettaeyjum við Nýja-Sjáland, eða marga fiska, sem aðeins eiga heima í einu einasta vatni. Auk þess, sem nú hefur verið getið um takmörkun og víð- áttu á heimkynni dýrategundanna, mætti nefna ýmislegt ann- að, sem máli skiptir, áður en lengra er haldið. Telja mætti til dæmis nokkrar dýrategundir, sem hafa dreifð heimkynni, það er að segja, sem lifa á tveimur eða fleiri fjarlægum stöðum á yfirborði jarðar, þannig, að svæði það, sem liggur á milli heim- kynnanna, er ókleifur múr fyrir tegund þá, sem í hlut á. Þannig lifir til dæmis sá flokkur spendýra, sem einu nafni kallast poka- dýr, bæði í Ástralíu og Suður-Ameríku, til er kyrkislönguteg- und, hin svonefnda bóa-slanga, sem lifir í Suður-Ameríku og á Madagaskar, og loks á úlfalda-ættin heima bæði í Suður-Ame- ríku og Asíu, en hvergi annars staðar nema tamin. Á hinn bóg- inn verður þess einnig að gæta, að flestar dýrategundir eru, eins og kunnugt er, bundnar sérstöku landslagi, svo sem eyðimerkur- dýr, skógardýr, steppudýr, votlendisdýr, vatnadýr og sævardýr. Á meðan það var trú manna, að guðs hönd hefði skap- að dýrategundirnar hverja fyrir sig, fannst engum þurfa skýr- inga við á þeim fyrirþrigðum, sem nú hafa verið nefnd. Þá var talið sjálfsagt, að hvert dýr, eða öllu heldur sérhver tegund dýra hafi verið sköpuð á þeim stað og í því umhverfi, þar sem hún á heima á okkar tímum, eða þá á stöðum, sem henni voru færar leiðir frá, þangað sem hún er nú. En á meðan slíkar skoðanir sátu í hásæti, gat ekki verið að ræða um vísindalega dýralanda- fræði, eða um vísindalega zoogeographiu, eins og fræðigreinin er nefnd á erlendum málum. Eigi varð lengra komizt en að til- greina, hvaða tegundir, og hversu margar, væru í hverju landi, og þá voru ,,pólitísku“ landamærin látin ráða. Að vísu reyndu

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.