Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 53
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 145 ciiiiiiiiiuiiiiiHHiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimimiiiiiiiiiii er hann þá suSur með Pýreneaskaga, kringum Azoreyjar, Madeira og víðar, en slangrar á vorin ,oft í stórtorfum, norð- ur með Bretlandseyjum .stundum ,inn í dönsku sundin, norður með öllum Noregi og til íslands, en hverfur aftur á haustin“. Á. F. Fiskimælingar á Þór. Síðan 1935 hafa verið farnir 11 fiskirannsóknarleiðangrar með varðskipinu Þór, nefnilega: 30. marz — 27. maí 1935 16. febr. — 24. febr. 1936 20. júní — 12. ágúst 1936 23. mai — 15. júlí 1937 23. okt. — 28. okt. 1937 13. febr. — 18. febr. 1938 12. apr. — 17. apr. 1938 22. júni — 26. júní 1938 13. des. — 16. des. 1938 28. marz — 2. apr. 1939 11. maí — 27. maí 1939 Þegar hér við bætast rannsóknir á togaranum Geir 25.-26. júlí 1939 vegna Faxaflóanefndar, rannsóknir á mótorbátnum Harald G. 26. júlí ’39 og 4 rannsóknarstöðvar Dönu 29. júlí 1939, sem ég hefi nokkur gögn frá, hefir verið togað samtals á 668 stöðum. Þá eru reyndar einstöku staðir tvítaldir, þar sem togað hefir verið hvað eftir annað með mánaða millibili, til þess að gera samanburð á fiskilaginu. Þessir staðir eru í Faxaflóa. Á þessum 668 stöðum hafa veiðst 248.545 fiskar, sem skiptast á milli 60 tegunda. Langmestur hlutinn af þessum afla hefir verið mælt, og mjög mikið rannsakað á annan hátt. Enda þótt fjöldahlutfallið á milli teg. gefi engan veg- jnn rétta mynd af fjöldahlutfalli þeirra í sjónum, set ég hér til fróðleiks dálítið yfirlit. Sumir fiskar virðast miklu sjaldgæf- ari en þeir eru í raun og veru af ýmsum ástæðum, t. d. vegna þess að þeir eru uppi í sjó (síld, hrognkelsi o. fl.) eða þá að 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.