Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 46
138 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
imiiiimiiiii iiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Litla sæsvalan í Vestmannaeyjum.
Það hefir lengi leikið nokkur vafi á því, hvort litla sæsvalan
(Hydrobates pelagicus (L.)) gæti talizt góður og gildur
borgari í fuglaríki íslands. Stöku sinnum hafa að vísu einn og
einn fugl þessarar tegundar náðst hér á landi, og auk þess hefir
komið fram sterkur grunur um að hún verpi í Vestmanna-
eyjum.
Hantzsch getur þess í hinni ágætu bók sinni um íslenzka fugla
(B. Hantzsch: Beitrag zur Kenntnis der Vogelwelt Islands. Ber-
lin 1905), að á dýrafræðisafninu í Kaupmannahöfn sé hamur
af litlu sæsvölu, sem sagt sé að hafi náðst við Vestmannaeyjar
2. febrúar 1831. Benedikt Gröndal segir í fuglatali sínu í skýrslu
Náttúrufræðifélagsins 1894—1895, að litla sæsvalan komi að
Suðurlandinu, og að ein hafi fundizt villt á túni við Úthlíð í
Biskupstungum í júní 1885. Dr. Bjarni Sæmundsson (Bj. Sæ-
mundsson: Nogle ornithologiske Iagttagelser og Oplysninger.
Zoolog. Medd. fra Island XVI. Vidensk. Medd. fra Dansk
naturh. Foren., Bd. 97, 1934) getur þess loks, að Náttúru-
gripasafninu í Reykjavík hafi borizt 1 litla sæsvala, sem fund-
izt hafi dauð í grennd við bæinn Innri-Njarðvík á Suðurnesj-
um í ágúst 1913.
Hantzsch skýrir frá því í fyrrnefndri bók sinni um íslenzka
fugla, að P. Nielsen kaupmaður á Eyrarbakka hafi í bréfi til sín
látið þá skoðun í Ijósi, að litla sæsvalan verpi í Vestmannaeyj-
um, því að hann hafi sumarið 1890 fengið 2 sæsvöluegg þaðan,
sem eftir stærðinni að dæma (28 X 21 og 27 X 20 mm) verði að
teljast egg þessarar tegundar. í grein, sem P. Nielsen seinna
skrifaði um fuglaathuganir sínar, getur hann einnig þessara
tveggja eggja og segir þar hiklaust, að litla sæsvalan verpi í
Vestmannaeyjum (P. Nielsen: Optegnelser vedrörende Islands
Fugle — — —. Dansk ornitholog. Foren. Tidsskrift, XIII,
1918—1919). Þessi ályktun Nielsens byggist á því, að egg litlu
sæsvölu eru almennt talin 24.5—30.6 mm á lengd og 19.0—22.5
mm á breidd, e'n egg stóru sæsvölu (Oceanodroma leucorrhoa
leucorrhoa (Vieillot)) 30.0—36.0 mm á lengd og 22.0—26.0 mm
á breidd. Hantzsch bendir þó á, að þessi tvö egg geti ekki talizt
óyggjandi sönnun þess, að litla sæsvalan verpi hér á landi, því