Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 66
158 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
,iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimim
að sama skapi hefur dregið úr þeim birtumagn og hita ; Hin langa
nótt og kuldabeltið er skammt fyrir norðan okkur.
Um jafndægur, vor og haust, er skástefna sólargeislanna í
meðallagi, miðað við okkar sjónhring, eða 26 gráður. Hæst á
loft kemst sólin hinn 21. júní, 49 1/2 gráðu frá haffleti, en lægst
22. desember og er þá sólin aðeins 21/2 gráðu yfir hafflöt; má
þá heita að sólargeislarnir renni við jörð.
Jan. Febr. Marz Apríl Maí Júní Júlí Ág. Sept. Okt. ? Nóv. Des.
Vorjafndægur Sumarsólhvörf Haustjafndægur Vetrarsólhvörf
Skinvídd eða skinflöt sólar, nefni ég þá sneið himins, sem
takmarkast af dagboga sólar og sjóndeildarhring; því hærri sem
sólargangurinn er, þess meiri er skinvíddin.
Skinmagnið byggist einnig á sólarhæðinni, því hærra sem
sólin er á loftinu, þess heitari og bjartari eru geislar hennar.
Hið raunverulega skinmagn finnst hérumbil með því að
margfalda skinvíddina með skinmagninu. — Sjá III. töflu.
Samúel Eggertsson.