Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 37
'1
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 129
tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
við að lokum hluta úr kvið sædjöfulsins með tveimur hængum föst-
um í roðinu.
Á. F.
Allar myndirnar eru eftir:
Johs. Schmidt: Danas Togt omkring Jorden 1928—1930, nema
tvær þær síðustu, sem eru úr „Fiskarnir“ eftir Bjarna Sæmundsson.
Árangur ísl. fuglamerkinga XV.
A. INNANLANDS.
1) Rita (Rissa tridactyla (L)). Merkt (5/637) á Sauðárkróki,
þ. 13. júlí 193h. Var hún þá fullorðin.
Skotin á Faxaflóa 7 sjómílur norður af Garðskaga, þ. 11. apríl
1939. Skotmaðurinn var háseti á færeyskri fiskiskútu.
2) Lómur (Colymbus stellatus, Pontopp). Merktur (3/708)',
þ. 20. júlí 1937 hjá Stakkadal á Rauðasandi, í Barðastrandarsýslu.
Veiddist í net í Bugsvatni, í Fróðárhreppi í Snæfellsnessýslu, þ.
17. júní 1939.
3) R i t a (Rissa tridactyla (L)). Merkt (5/1909, þ. 7. júní 1939)j
á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi í Gullbringusýslu.
Var veidd og drepin þar í nágrenninu þrem vikum síðar.
4) Stelkur (Tringa totanus robusta (Schiöler)). Ungi,
merktur (5/1916) á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi, þ. 20. júlí
1939.
Fannst dauður í Kirkjubólslandi á Miðnesi skömmu síðar.
5) Ó ð i n s h a n i (Phalaropus lobatus (L)). Merktur (6/2765)]
á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi, þ. 2. júlí 1939.
Fjórum dögum síðar flaug hann á gaddavírsgirðingu þar í ná-
greinninu og drapst af því. Þetta var ungi.
6) Stari (Sturnus vulgaris, L). Merktur (6/1775) á Skjald-
fönn í Norður-lsafjarðarsýslu, þ. 8. maí 1939.
Fannst dauður seinni partinn í september 1939, á Grund í Höfn-
um í Gullbringusýslu. Hafði hann farið niður um reykháf og lent
inni í eldstónni undir miðstöðvarkatlinum, sem ekki hafði verið
kyntur síðan í vetur s. 1. Fannst hann þar þurr og hertur í ösk-
9