Náttúrufræðingurinn - 1940, Síða 6
98
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
en þegar til kom, lagði Bjarni Sæmundsson hvorki fyrir sig
ljósmyndagerð né stórskipasmíði, heldur kaus hann lærdóms-
brautina. Og hvort sem hin fjölbreytta náttúra æskustöðvanna
hefur heillað hug æskumannsins í faðm náttúrufræðinnar eða
ekki, þá er hitt víst, að Bjarni varð þegar í æsku fyrir svo sterk-
um áhrifum frá úfnum hraunum, fjarlægum fjöllum og óend-
anlegri útsýn yfir sæinn, að hann mat aldrei til jafns ýmsa
aðra íslenzka náttúrufegurð, eins og til dæmis dalina. Þar kunni
hann helzt ekki við sig, hann mat meira útsýn en skjól.
Haustið 1883 settist Bjarni Sæmundsson í 1. bekk Lærða skól-
ans, þá 16 vetra að aldri. Sex árum síðar útskrifaðist hann úr
skólanum sem stúdent, vorið 1889. Þegar sama sumar steig
hann á skipsfjöl og sigldi til Kaupmannahafnar og byrjaði þar
nám við háskólann strax um haustið. Hann lauk fullnaðarprófi
í náttúrufræði og landafræði vorið 1894 og hafði á skólaárum
sínum getið sér hvers manns hylli og ágætt lof fyrir sérstaka
reglusemi og háttprýði, en þó fyrst og fremst fyrir frábæra náms-
hæfileika og ágætan árangur. Nú var undirbúningsskeiðið á enda
en lífsstarfið sjálft átti að hefjast. Og ísland kallaði. Strax um
sumarið (1894) hvarf Bjarni heim til ættjarðarinnar. Vildi nú
svo vel til, að prófessor Þorvaldur Thoroddsen, sem var kennari
í Náttúrufræði við Lærða skólann, fékk leyfi til þess að létta af
sér nokkru af kennslustundunum vegna vísindalegra anna og
velja sér aukakennara, en fyrir valinu varð að sjálfsögðu Bjarni
Sæmundsson. Þannig byrjaði hann kennslu í náttúrufræði við
Lærða skólann haustið 1894. Næsta ár fékk Thoroddsen leyfi til
þess að dvelja vetrarlangt í útlöndum til þess að vinna úr þeim
miklu rannsóknargögnum, sem hann hafði safnað á ferðum sín-
um um landið þvert og endilangt mörg undanfarin ár og var þá
Bjarni settur kennari í hans stað á meðan. En Thoroddsen hvarf
nú alveg inn í rannsóknastarfið og fékk lausn frá embætti haust-
ið 1899. Var þá Bjarni þegar í stað settur fastur kennari og veitt
embættið í apríl næsta ár (1900). Þessu embætti gegndi hann
síðan þangað til haustið 1923 eða í samfleytt 29 ár (frá 1894).
Hinn 26. september 1896 kvæntist Bjarni Sæmundsson
Steinunni Guðmundssen, dóttur Sveins kaupmanns Guðmunds-
sens frá Búðum og konu hans, frú Kristínar (f. Siemsen). Hjóna-
band þeirra varð hið farsælasta og var heimili þeirra til fyrir-
myndar um reglu og háttprýði. Þeim varð þriggja dætra auðið,
en einni þeirra, Sigríði að nafni, urðu þau að sjá á bak árið 1919.