Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 37
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
129
GEIR GÍGJA:
UM HCJSFLUGUNA
Húsflugan er eitt af þeim skordýrum, sem allra bezt hafa
verið rannsökuð. Það er einkum þrennt, sem því veldur, að þessi
dýrategund hefir verið betur rannsökuð en flest önnur skordýr.
í fyrsta lagi er hún í híbýlum manna, svo það eru hæg heima-
tökin að ná í hana. í öðru lagi er hún útbreidd um meirihluta
jarðar, þar sem menn og húsdýr hafast við, svo flestir vísinda-
menn hafa hana í heimalandi sínu. Og í þriðja lagi er hún mesti
skaðræðisgripur, svo það var nauðsynlegt að taka hana til ýtar-
iegrar rannsóknar bæði um byggingu og lifnaðarhætti. Hér á
landi er húsflugan mest við sjávarsíðuna í kauptúnum og kaup-
stöðum.
Húsflugan heyrir til þeim skordýrum, sem nefnast tvívængj-
ur (Diptera), og í daglegu tali eru nefnd flugur. Hér á landi
eru um 250 tegundir af flugum. Flugurnar eru meðal annars
auðþekktar á því, að aðeins framvængirnir eru fullþroskaðir
flugvængir, en afturvængirnir eru ummyndaðir í kólfa, sem
sveiflast fram og aftur þegar flugan flýgur.*)
Líkama húsflugunnar er eins og annarra skordýra deilt í þrjá
aðalhluta: höfuð, frambol og afturbol. Á höfðinu eru tvö augu,
sem hylja að metsu hliðar þess. Ef við skoðum fluguna í stækk-
unargleri, sjáum við greinilega, að hvort þessara augna er sam-
sett af fjölda mörgum smáaugum. Okkur virðast þau vera
óteljandi, en vísindamönnum hefir þó tekizt að telja þau og þeir
segja, að það séu um 4000 smá-augu í hverju auga húsflugunnar.
Það mætti nú ætla, að sjónin væri það sæmileg, með þessum
tveimur samsettu augum, að þau nægðu húsflugunni. En svo er
þó ekki, því auk þess hefir hún þrjú smá augu ofan á höfðinu.
Framan á höfðinu eru fálmararnir. Þeir eru alsettir hárum,
sem flugan skynjar með.
Neðan á höfðinu er sograninn. Hann er stinnur og útspertur,
*) Eins og kunnugt er, hafa sk'ordýrin vanalega fjóra vængi (sbr.
fiðrildi).