Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 40
132
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
Blóðæðakerfið er þannig, að hjartað, sem er löng og liðskipt
pípa, liggur eftir endilöngum afturbolnum efst í holinu. Það
er með fimm hólfum og opum á hliðum og framenda. Þegar
hjartað dregst saman — slær — þrýstist blóðstraumurinn fram
í gegnum hólfin og út í holrúm líkamans. Sérstakar æðar er varla
hægt að segja að séu fyrir hendi, en þó fer blóðið eftir sérstök-
um leiðum um holrúm líkamans og til hjartans aftur inn um
hliðaropin.
Blóðið er litlaust. Það flytur næringarefni til vefjanna og úr-
gangsefni þaðan aftur til þvagfæranna. Blóðið hefur einnig mikla
þýðingu við útþenslu á ýmsum líffærum líkamans, svo sem
ranans, eins og fyrr er sagt, og einnig vængjanna, þegar dýrið
hefur sig í fyrsta skipti til flugs.
Um skynfæri flugunnar er það að segja, að allur líkaminn
er þakinn tilfinningarnæmum hárum, en þó er mest af þeim á
fálmurum, rana, vængjum og svifkólfum. Þessi tilfinninganæmu
hár geta verið á fleiri en einn veg, en þau eru hol og hreyfanleg.
Það virðist ekki í fljótu bragði, að kólfarnir hafi mikla þýð-
ingu fyrir flugið, en þó er það svo, því ef annar kólfurinn er
tekinn burtu, er flugið þunglamalegt og erfitt, en missist þeir
báðir, er dýrið nærri flugvana. Það er talið að kólfarnir hjálpi
flugunum til að halda jafnvægi.
Sennilega getur húsflugan ekki skynjað hljóð. En foæði hús-
flugan og aðrar flugur geta fundið bragð og lykt, en þó fiski-
flugurnar líklega allra bezt. Skynfæri lyktarinnar eru í fremstu
liðum fálmaranna. Bragðskynjunin er í rananum — í hárum, sem
eru á vörunum, er einnig í hinum fíngerðu skorum varanna.
Einkum eru varirnar taldar næmar fyrir sykri. Nýjustu rann-
sóknir benda einnig til þess, að flugan geti skynjað bragð með
fótunum, en ekki eru þar þó enn fundin sérstök skynfæri. Sérstak-
lega er bragðskynjun fótanna næm fyrir reyrsykri eða sextán
sinnum næmari en varir flugunnar, og 100—200 sinnum næmari
en tunga mannsins. Flestir hafa veitt því eftirtekt, hvað flugur
eru sólgnar í sykur. Þær geta lifað margar vikur á eimuðu vatni
og örlitlu af reyrsykri. En það er ekki aðeins hjá húsflugunni
að bragðskynjunin er í fótunum. Það er einnig hjá fleiri flugum
og nokkrum fiðrildum. Þar á meðal aðmírálsfiðrildinu, sem
fundizt hefur nokkrum sinnum hér á landi.
Sjónskynjunin er í hinum samsettu augum, sem hylja meiri
hluta höfuðsins. Mörg skordýr geta skynjað liti. Mest hefur