Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 41
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
133
hunangsflugan verið rannsökuð í þessu efni. En hún skynjar
ekki rauðan lit. Talið er að dagfiðrildin séu þau einu skordýr
af þeim, sem hingað til hafa verið rannsökuð, er skynja rautt.
Það er ekki ennþá fyllilega rannsakað um húsfluguna, að hve
miklu leyti hún skynjar liti. Aftur á móti er talið, að litla hús-
flugan, sem hér á landi virðist vera algeng, skynji liti.
Þær rannsóknir, sem fram hafa farið á húsflugunni í þessu
efni, benda til, að hún laðist að ákveðnum litum, ef hún hefur úr
nokkrum að velja — eða ef til vill réttara sagt — fælist suma
liti. Það hefur sérstaklega vakið athygli, að húsflugan sneiðir
mjög hjá bláa litnum. Þetta hafa menn notfært sér þannig, að
mála veggþ í mjólkurbúum og brauðbúðum bláa og setja bláar
rúður í glugga í peningshúsum.
Ósamsettu augun ofan á höfðinu eru byggð á annan hátt en
samsettu augun. En það er ekki fyllilega augljóst til hvers ósam-
settu augun eru. Þau kváðu vera ljósnæmari en hin samsettu.
Einnig er talið, að þau séu að einhverju leyti jafnvægistæki
svipað og kólfarnir.
Á meðan flugan sat á sykurmolanum og teygaði sætan vökvann,
höfum við notað tímann til þess að virða hana fyrir okkur. En
nú skulum við athuga betur mataræði hennar. Því það skiptir
miklu máli í sambandi við það, hvað hættulegur smitberi hún er.
Mörg skordýr neyta engrar fæðu eða mjög lítillar á fullorð-
insaldri, en hafa þá einhverja forðanæringu frá lirfuskeiðinu
og eru kynþroska þegar í byrjun fullorðinsaldurs, svo æxlun
getur strax farið fram, og varp skömmu á eftir, og æfi dýrsins
er að því búnu lokið.
Önnur eru þau skordýr, sem ekki verða kynþroska strax eftir
að þau hafa náð fullorðins aldri, heldur verða þau að lifa og nærast
í nokkurn tíma, unz þau geta farið að verpa. Þannig er það um
húsfluguna, hún verður að afla sér fæðu um hríð, áður en hún
getur farið að auka kyn sitt. Ef lífsskilyrðin eru hagstæð, verpir
flugan nokkrum sinnum og verður því sífellt að neyta fæðu.
Þegar flugan hefur etið sig metta, dregur hún sig í hlé, hreinsar
og snyrtir höfuð sitt og rana með framfótunum. Oft ælir hún þá
fæðu, er lítur út sem ljósir blettir, þegar þeir eru orðnir þurrir
á gluggarúðum og annars staðar þar sem flugan er. Og kannast
flestir við hina svonefndu flugubletti, sem stundum eru dökkir
og er það saur flugunnar.
Húsflugan etur flest, sem hún er fær um að sjúga upp með