Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 45
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 137 Erlendis hafa verið gerðar nákvæmar rannsóknir á því, hvað mikið væri af húsflguum á hverjum tíma að sumrinu, og þær rannsóknir hafa sýnt, að það eru tímaskipti að mergð flugunnar, sem fer eftir veðráttu og staðháttum. Þegar haustar og veðráttan kólnar, smáfækkar flugunum þangað til engin sést eftir. En hvað verður af þeim, þegar þær hverfa á haustin? Þannig hefir margur spurt, og vísindamennirnir hafa leitast við að svara spurningunni. Húsflugan getur lifað yfir veturinn bæði sem lirfa, púpa og fullvaxin fluga. Hún getur aukið kyn sitt, hvenær sem er á árinu, ef hún hefir hæfilegan hita, nóga fæðu og sæmilegan stað til þroskunar afkvæmisnis. Og það eru þessar ytri ástæður, sem hafa mest að segja um það, hvað þróun húsflugunnar er ör. En þó flugurnar geti lifað að vetrinum, drepast margar þeirra á haustin, þegar þær hafa lokið ætlunar- starfi sínu. En aðrar draga sig í hlé, og falla jafnvel í dvala- kennt ástand og bíða þar til batnar í ári. Húsflugurnar þurfa nokkuð mikinn hita til þess að vera í fullu fjöri. Þegar hitinn er kominn niður í 10 stig, eru þær þunglamalegar, en geta þó skriðið um og tekið fæðu. Hve lengi húsflugan getur lifað frjáls úti í náttúrunni er ekki auðið að segja, en í rannsóknarstofum lifa þær venjulega 5—8 vikur, en í einstökum tilfellum allt að 10 vikur. Sennilegt þykir að húsflugan lifi venjulega, þar sem hún er frjáls, allt að þrem vikum. En það virðist augljóst, að líf flugunnar endist leng- ur, ef kalt er í veðri, heldur en ef hlýtt er. Eftir því sem hlýrra er, verða allar efnabreytingar líkamans örari, auðvitað þó ekki nema að ákveðnu marki. Eitt sinn var tilraun gerð með það, að merkja flugur, til þess að sjá hve gamlar þær yrðu. Nýklaktar flugur voru teknar og litaðar, og þeim síðan sleppt á bóndabæ nokkrum, og átti að sjá, hve lengi stofninn héldi sér. En þetta bar ekki tilætlaðan ár- angur, liturinn hvarf, meðal annars af þvi, hvað flugurnar voru gjarnar á að snyrta sig til með fótunum. Húsflugan hefir sitt böl að bera eins og önnur dýr viðvíkj- andi sjúkdómum. Það eru bæði sjúkdómar, sem stafa af bakt- eríum, og þó eiknum flugumyglan (Empusa muscae), sem er hús- flugunnar algengasti og hættulegasti sjúkdómur, og er talinn ásækja hana hvar sem er á hnettinum, en þó einkum á norður-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.