Náttúrufræðingurinn - 1940, Qupperneq 46
138
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hluta jarðar. Sérstaklega seinnipart sumars drepst mjög mikill
hluti flugna af hans völdum.
Engar varnir á móti flugunum eru fundnar eins stórvirkar
eins og þessi sjúkdómur. Það er ekki óalgengt hér á landi, að
sjá flugur, sem drepizt hafa af völdum flugumyglu.
Ýms dýr veiða húsfluguna sér til matar. Má þar fyrst nefna
jötunuxana, þeir eru gráðugir í flugur og flugulirfur.
Jafnvel meðal flugnanna á húsflugan skæða óvini. Alkunnar
eru gulu mykjuflugurnar, sem algengar eru á mykju og hrossa-
taði á sumrin. Þær eru hin mestu rándýr, sem lifa á flugum,
sem þær ráða við, allt upp í stærð húsflugunnar. Mykjuflug-
urnar ráðast einkum á aðrar flugur, þegar þær koma til þess
að verpa. í einu stökki grípa þær veiðina með löppunum og
halda þeim föstum á meðan þær sjúga úr þeim næringuna. Ein
mykjufluga hefir verið staðin að því, að drepa þannig 12 hús-
flugur á einum degi.
Maurar, köngurlær og fuglar gera oft mikinn usla í flugum
úti við.
Það er alkunnugt að húsflugurnar eru smitberar, og á það
sjálfsagt ekki síður við hér á landi en annars staðar, þó allt í
því efni sé hér lítið rannsakað. Húsflugan er auk þess til óþæg-
inda og óþrifnaðar bæði fyrir menn og skepnur. Hefir því verið
lögð mikil áherzla á það erlendis, að finna ráð til þess að halda
fjölgun flugnanna í skefjum, en það hefir gengið erfiðlega.
Það er ekki undarlegt, þó margur muni spyrja: Hvað getum
við gert til þess að útrýma húsflugunum?
Þegar við sjáum flugurnar koma inn um gluggann, hugsum
við til þeirra ógeðslegu staða, áburða- og sorphauga, sem þær
koma frá, þar sem allt er morandi í bakteríum, sem flugurnar
flytja með sér. Og ef til vill flytur einhver af þeim óboðnu gest-
um hættulegan sjúkdóm með sér inn á heimilið.
Það er ekki erfitt að tortíma flugunum, þegar þær eru komnar
inn í híbýlin. Algengt er að hengja flugnaveiðara upp í loftið á
herbergjum, þar sem þær festast. Einnig má veiða þær í háf,
það er lítill léreftspoki með vírhring í opinu, sem festur er á
stutta stöng. En þetta er ekki nóg, það þarf helzt að fyrirbyggja
sem mest, að flugurnar komizt inn í húsin. Þær fara nær ein-
göngu inn um gluggana, þegar þeir eru opnaðir. Það má fyrir-
byggja á þann hátt, að strengja þunnt efni t. d. gluggatjaldaefni
fyrir þann hluta gluggans, sem opnaður er. Þetta þarf að vera