Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
141
að birta hér sem bráðabirgðaniðurstöðu í áframhaldi af fyrri
grein minni í þessu tímariti.
Til þess að unnt sé að gera sér fulla grein fyrir þeim skoðana-
breytingum á myndunarsögu landsins, sem hér verður um rætt,
er nauðsynlegt að athuga þær meginstaðreyndir, sem fyrri skoð-
anir hafa verið reistar á.
í fyrsta lagi er þá þess að geta, að landið virðist skiptast í
t.vö eða þrjú allgreinilega aðgreind jarðfræðileg svæði. í fyrsta
lagi svæði ,sem talið hefur verið byggt að mestu úr tertieru
basalti. Þar til teljast Austfirðirnir, allt Norðurland vestan Bárð-
ardals, Vestfjarðakjálkinn og Vesturland suður að Mosfellssveit-
arfellunum. Neðan til í fjöllum þessa svæðis er talið að ríki dökk-
leit og þétt basaltlög, sem runnið hafi snemma á tertiera tíman-
um. Þorvaldur Thoroddsen kallaði efnið í efra hluta fjallanna
yngra basaltið til aðgreiningar frá því neðra og eldra. Auk þess
sem surtarbrandslög áttu að aðgreina báðar deildirnar, talar
hann um, að yngri deildin sé yfirleitt ljósari að lit en hin. Dr.
Helgi Péturss bætti þeirri athugun við, að efstu hraunlögin væru
víða sérkennileg fyrir það, hvað þau væru blöðrótt og líktust
mjög hinum yngri grágrýtishraunum kunnra gosdyngja. En eink-
um ber að geta þess, að á milli þessara efstu hraunlaga taldi hann
sig hafa fundið ótvíræðar jöklamyndanir, sem að hans dómi
sönnuðu það, að þessi hraun væru runnin á hinum kvartera ís-
aldartíma.
Annað meginsvæði landsins er breitt, en óreglulegt belti yfir
það mitt frá Þingeyjarsýslum til Reykjaness. Það stingur við
fyrstu sýn mjög í stúf við fyrra svæðið vegna þess, að það er
að langmestu leyti móberg. Auk þess er það almennt talsvert
iægra og er í stórum dráttum láglendi, sem mörg einstök mó-
bergsfjöll rísa upp yfir, en basaltsvæðið er mestmegnis háfjalla-
klasi með þröngum og djúpum dölum. Á móbergssvæðinu koma
þó víða fyrir gömul hraunlög og á milli þeirra finnast sums stað-
ar, að því er talið er, jöklamyndanir, og sérstaklega er það eftir-
tektarvert, að þessi hraunlög eru sums staðar ofan á móbergs-
fjöllunum.
Auk þessara megin jarðfræðilegu svæða landsins má í þriðja
lagi minna á fyrrgreint grágrýtissvæði, sem að nokkru leyti
fellur saman við móbergssvæðið. Öll þessi svæði virðast skarpt
aðgreind, og það er erfitt að koma auga á nokkurt samband á milli
þeirra. Þó má telja víst að grágrýtið sé yngra en móbergið, þótt