Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
143
hafa einkum rannsakað yngri eldfjöll og hraun þeirra, og Oetting
og Iwan hafa sett fram þá skoðun á myndun móbergsfjallanna,
að umhverfi þeirra hafi grafizt burt af jöklum.
Sigurður Þórarinsson hefir skrifað merkilegar ritgerðir um
Vatnajökul í samvinnu við H- W. Ahlmann og mun nú hafa
til meðferðar sögu íslenzku jöklanna frá því á landnámsöld.
Guðmundur Kjartansson hefir rannsakað færslu jökulrand-
arinnar í Hreppunum í lok ísaldar.
Merkilegar rannsóknir framkvæmdi stór þýzkur leiðangur
fyrir nokkrum árum. Aðdráttarafl jarðar var mælt víða á Norður-
iandi, en af slíkum mælingum má draga ályktanir um byggingu
jarðlaga undir íslandi og er það í fyrsta sinn, sem það er gert
hér á landi. Þá var mæld nákvæmlega vegalengdin á milli
tveggja staða sitt hvoru megin við móbergssvæðið, í þeim til-
gangi að ákveða með endurtekningu mælinganna, hvort hinum
miklu sprungumyndunum í Þingeyjarsýslum sé samfara gliðn-
un á landinu. Af þeim, sem að þessum mælingum störfuðu, má
nefna Niemzsyck, Ansel, Bernauer.
Af þessu yfirliti er ljóst, að enn hefir skort tilfinnanlega rann-
sókn á hinu forna basalti, þótt undarlegt megi virðast, þar sem
meiri hluti landsins er úr því gerður, og er því ekki að furða,
þó að myndunarsagan hafi verið slitrótt og um leið röng.
II.
Tjörnesið mun mega telja merkilegasta hluta landsins í jarð-
fræðilegu tilliti, því að auk hinna þekktu skeljalaga er þar að
finna allar helztu myndanir landsins og þegar nánar er að gáð,
bir.tist í því spegilmynd af byggingu alls landsins. Elzta mynd-
unin á nesinu er mjög fornfálegt basalt, sem fram kemur í Héð-
inshöfða, en nær þaðan suður og austur á bóginn, myndar Húsa-
víkurfjall og undirstöðu Búrfells og fjallanna sunnan og austan
við það. Við Búrfell nær basaltið upp í 500 m hæð, en hallar
þaðan jafnt til sjávarmáls við Héðinshöfða. Víða eru lög þessi
snarhallandi, 25—35°, öll sundurkramin og alsett sprungum,
sem fylltar eru kvarzi og zeolítum, en holur allar fylltar krystöll-
um. Þetta eru hin greinilegustu ellimörk og hefi ég hvergi séð
svo ellilegt basalt á Mið-Norðurlandi. Ætla ég því, að um ein-
hverja elztu deild basaltsins sé að ræða. Að innri byggingu er
þessi bergtegund þó ekki verulega frábrugðin yngra basalti.