Náttúrufræðingurinn - 1940, Síða 68
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hvöss, án húðtota. Varaop óhulin í hæð
við húðina í kring. Eru einungis á neðra
borði blaðanna. Hrafnastör (C. saxatilis).
tt. Sprotagerðin óreglulegri. Bilin milli
sprotanna misjöfn og lengri.
u. Fjögur greinileg, há og þunn, ljós rif
hvorum megin við miðrif blaðanna.
Blöðin 3—5 mm breið, tiltölulega
stutt, skammydd, ljósgræn. Engar húð-
totur. Varaop aðeins á neðra borði, í
hæð við húðina í kring. Neðstu blað-
slíðrin venjulega gráleit. Slíðrastör (C.
sparsiflora).
uu. Mörg lág rif báðum megin við miðrif
blaðanna. Húðtotur á blöðunum, sem
eru dökkgræn eða grágræn. Neðstu
blaðslíðrin grá-móbrún.
v. Blöðin venjulega 3—5 mm breið
með niðurorpnum röndum, oft
sveigð aftur á bak, stinn og stutt-
ydd. Varaop og húðtotur einungis á
neðra borði blaðanna. Jarðstöngull-
inn með mörgum, bogsveigðum,
sterkum renglum og sprotum og
strjálum, grófum rótum (Hjárót-
um). Blaðslíðrin með mógljáandi
lágblöðum. Stinnastör (C. rigida).
vv. Blöðin venjulega 2—3 mm breið
með upporpnum röndum (einkum
þurrkuð), ekki mjög stinn, langydd.
Varop báðum megin á blöðunum,
oft eins mörg á efra borði og hinu
neðra. Húðtotur einungis á efra
borði blaðanna. Blaðoddurinn er
oft sveigður inn á við. Jarðstöng-
ullinn er ekki mjög sterklegur, með
uppréttum (eða ögn bogsveigðum)
sprotum. Blaðslíðrin (lágblöðin) grá-
leit eða móleit. Vex einkum í mýr-
um. Mýrastör (C. Goodenoughii).