Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 77

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 77
náttúrufræðingurinn 169 hafá síðustu árin getað skýrt ýmis þau fyrirbrigði, sem áður hafa legið óleyst. Það er t. d. gömul staðreynd, að vöxtur rót- arinnar eykst, ef broddurinn er skorinn af henni. Skýringin á þessu liggur í því, að rótarbroddurinn myndar margfalt meira af vaxtarefnum en rótin þarf með, svo að vöxtur rótar- innar verður hægari en ef minna væri af vaxtarefnum. Og vísindin hafa sýnt, að til að auka vöxt rótarinnar hjá þeim plöntum, sem rannsakaðar hafa verið, þarf oftast aðeins einn hluta af vaxtar- efni í milljarð hluta vatns. Vísindamaður nokkur hefir til gamans reiknað það út, að til þess að flytja allt það vatn, sem þarf til að leysa upp eitt gramm af he- teroauxini, svo að það hafi vaxtaraukandi áhrif á ræturnar, þurfi 400 000 járnbraut- arlestir með 50 vögnum, sem taka 10 tonn hver, í hverri lest. Samanlagðar mundu þessar lestir ná fjórða hluta vegar til tunglsins. í þessu sambandi er ef til vill líka rétt að geta þess, að ennþá hefir ekki fengizt full sönnun þess, að rótin þurfi auxin til þess að geta vaxið. Þegar planta er lögð flöt á jörðina í jurtapott, vex rótin niður, en stofninn upp. Þetta er afleiðing þess, að þyngdarafl jarð- ar dregur til sín vaxtarefnin, svo að þau safnast saman öðrum meg- in í jurtinni. Það veldur síðan því, að í stofninum teygjast þær frumur, er neðst liggja, og lyfta stönglinum upp, en hið mikla vaxtarefnamagn neðst í rótinni veldur því, að aðeins efri hliðin vex, svo að rótin vex í boga niður á við. Liggjandi grasstrá beygist upp við hnén vegna aukins magns af vaxtarefnum þar á neðra borði. Og grös, sem vaxa inni og fá ljós frá einni hlið, 5. mynd. Toppur af hafraslíðri. — Ljósið kemur frá hægri hlið, miðað við lesandann, og vaxtarefnin safnast saman þar, sem mynd- in er strikuð. Fyrst beygist toppurinn, en síðan allt blaðið, í átt- ina til ljóssins. 6. mynd. Planta, sem lögð hefir verið flöt á jörðina, beygir stofn- inn upp, en rótina niður. Vaxtar- efnin safnast saman þar, sem myndin er strikuð.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.