Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 14
Jóhannes Áskelsson: „Þar var bœrinn, sem nú er borgin" Um Eldborg og Eldborgarhraun í KolbeinsstaSahreppi í Landnámabók stendur, sem alkunna er, frásögn um uppkomu elds í Borgarhrauni og um myndun borgarinnar. Er hér átt við Eldborgarhraun og Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi, eða á Mýrum, eins og enn er stunduð notað. Frásögnin er svo: „Þá var Þórir (o: Sel-Þórir á Rauðamel inum ytra) gamall ok blindr, er hann kom út síð um kveld ok sá, at maðr reri utan i Kaldárós á járnnökkva, mikill ok illiligr, ok gekk þar upp til bæjar þess, er í Hripi hét, ok gróf þar í stöðulshliði. En um nóttina kom þar upp jarðeldr, ok brann þá Borgarhraun. Þar var bærinn, sem nú er borgin“ (5). Mönnum hefir þótt frásögn þessi annarleg og með þjóðsögublæ. 1 rauninni á þjóðsögublærinn þó aðeins við um þann hluta frásagnar- innar, sem fjallar um sýn Sel-Þóris. Þegar sagt var frá uppkomu jarðeldsins, er frásögnin jafnstutt og laggóð og venjulega, þegar íslenzk rit geta um eldsuppkomur. Það er ekki ólíklegt, að sem heim- ild um sögualdar gos í Eldborg hafi klausan liðið við þjóðsögublæ- inn, sem er í fyrra hluta hennar. Hitt gegnir svo öðru máli, hvort gos í Eldborg, á landnámsöld eða siðar, stangist á við einhverjar þekktar staðreyndir. Yfirgnæfandi líkur hafa verið færðar fyrir því, að Eldborgarhraun sé eldra en landnámið á þessum slóðum, eru fyrir því ýmis söguleg rök, sem ekki verða rakin hér, en vísað til heimilda um það efni (6, 9). Lega og stœrS Eldborgarhrauns Með Eldborgarhrauni að vestan rennur Haffjarðará. Nær hraunið þó óvíða alveg að ánni. 1 bökkum árinnar koma í ljós basaltklappir, og hvílir sums staðar á þeim sjávarleir og sandur með leifum sædýra. Mýrasund og misbreiðir flóar teygja sig frá ánni austur að hraun- jaðrinum. Austan megin að hrauninu liggur Haukatunguflói nýrzt,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.