Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 56
162
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
rákum áður en ég fyndi nokkrar (31. ágúst 1951), því að klappir eru
þama yfirleitt sprungnar og veðraðar, þær sem upp úr standa. Á brún
Skorradals norður af Hrossahæð fann ég loks tviátta rákir á grágrýtis-
gangi, sem stefnir af Oköxl og myndar nokkra hvalbakaða klappa-
hnjóta í röð eftir þeirri stefnu. Stefna eldra rákakerfisins A 10° N
(af Hrúðurkörlum við Kaldadalsveg) kom mér nokkuð á óvart. fs-
inn, sem það er eftir, hefur ýtzt skáhallt yfir ofanverða Borgarfjarðar-
dali, lent sunnan Skarðsheiðar og sameinazt þar Hvalfjarðarjöklin-
um. Yngra kerfið stefnir A 45° S (af suðurbrún Veggja) og er því
sem næst samsíða dalbrúninni (4. mynd). Aldursafstaða kerfanna er
augljós: Hið eldra er sterkara, með breiðum hvelfdum grópum, sem
aftur eru með sterkum en nokkuð máðum rispum að endilöngu. En
yfir þau liggja aftur hárfinar, en skýrar rispur hins yngra suðrænna
kerfis, sterkastar þeim megin í grópunum, sem klöppinni hallar suð-
ur. Þegar yngra kerfið myndaðist, hefur jökullinn verið orðinn svo
þunnur, að hreyfing hans varð að fylgja landslagi. Þó hafa Skorra-
dalur og Grafardalur verið enn vel barmafullir af ís.
BreiSafjörSur.
í Brokey í Hvammsfjarðarmynni hef ég fundið (13. maí 1950)
skýrar jökulrákir, sem stefna frá austri til vesturs og sýna, að skrið-
jökull fyllti eitt sinn allan Hvammsfjörð. Hjá Stykkishólmi fann ég
votta fyrir rákmn með sömu stefnu, en ekki svo ljóslega, að ég teldi
markandi á kort. Aftur á móti er þar mörkuð rákastefna A—V á
korti Þorvalds Thoroddsens. Uppi á Helgafelli fann ég enn þetta sama
kerfi í h. u. b. 65 m hæð y. s. austan við hákollinn. Þar eru rákirnar
nokkuð máðar, en þó einhlítar. Á öllum þessum stöðum sýna rák-
irnar jökulhreyfingu út Breiðafjörð. Aðstreymi skriðjökla sunnan að,
ofan af Snæfellsnesfjallgarði, hefur ekki megnað að sveigja hana til
norðlægari stefnu nema örlítið á Helgafelli. Aftur á móti stefnir
annað rákakerfi, sem ég hef athugað hjá Helgafellsvatni, úr suð-
austri (af norðurbrún Ulfarsfells). Það er eflaust yngra, myndað
eftir að meginskriðjökullinn út Breiðafjörð var tekinn að þynnast. En
við það gætti þrýstings skriðjöklanna sunnan af fjallgarðinum lengra
út frá fjallsrótum.
Uti í Breiðafjarðareyjum er mjög erfitt að finna jökulrákir. f ís-
aldarlok og lengi síðan hafa eyjarnar allar verið á kafi í sjó og brim
gnúið klappirnar. Aðeins í lægðum, þar sem sandur eða leir safnaðist