Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 39

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 143 þykkari og þéttari sem jarðlögin eru, sem vatnið seitlar í gegnum, því betur síast það. Fíngerður sandur og mold síar vel, gróiur jarð- vegur, eins og möl og urðir, sía illa. Holótt og sprungin jarðlög, eins og víða er í hraunum sía lítið eða ekkert. Þar getur vatnið oft streymt hindrunarlaust í gegn og hreinsast lítið, þó að það renni langar leiðir. í grennd við sorpleiðslur og hauga verður jarðvatnið meira og minna mengað gerlum. Hversu langt sú smitun berst með jarðvatninu, fer eftir síunarhæfni jarðlaganna. Jarðvatn, sem náð hefur að síast vel í jarðlögunum, getur orðið nær gerlalaust. Það er slíkt vatn, sem fæst úr uppsprettum, sem koma djúpt úr jörðu, og það er þetta vatn, sem fæst úr djúpum brunnum og djúpum borholum. Sjór er mjög misjafnlega gerlaríkur. í útliöfunum er gerlafjöld- inn víðast hvar lágur, en nær landi er hann hærri, mestur þar sem gætir frárennslis frá bæjum eða iðjuverum. Það er augljóst af því, sem hér liefur verið sagt, að rotnunargerlar þeir, sem oft finnast í vatni, eru komnir úr jarðveginum, eða frá úrgangsefnum manna eða dýra. Með vatninu geta þessir rotnunar- gerlar borizt í matvælin, og séu skilyrðin þar góð, fjölgar gerlunum óðfluga og matvælin spillast. En það eru ekki aðeins rotnunargerlar, sem berast eftir þessari leið, og það eru ekki aðeins rotnunargerlarnir, sem varast þarf í vatninu. Þar geta verið aðrar tegundir gerla, teg- undir, sem ekki orsaka rotnun i matvælum, heldur valda sjúkdómum í mönnum eða dýrum. Þess háttar gerla nefnum við sýkla. Af þeim mikla fjölda gerla, sem við þekkjum, eru það aðeins fáar tegundir, er orsakað geta sjúkdóma á öðrum lífverum, þ. e. fæstir gerlanna eru sýklar. Sjúkdómar af völdum sýkla eru flestir næmir, þ. e. þeir berast frá einum einstaklingi til annars, frá manni til manns, frá dýri til dýrs, eða frá dýri til manns. Leiðirnar, sem sýklarnir berast eftir, eru margvíslegar og tiltölulega fáir sýklar berast með vatni. Sýklar eru mjög misjafnlega lífseigir og fáar tegundir geta haldið lífi í langan tíma í vatninu. Er það aðallega einn flokkur sýkla, sem þarna kemur til greina, en það eru iðrasýklarnir. Draga þeir nafn af aðalheimkynnum sínum, en það eru iður eða þarmar manna og blóðheitra dýra. Af þessum flokki er hinn illræmdi taugaveikisýkill, Eberthella typhosa (eða Salmonella typhosa), ennfremur svokallaður taugaveikibróðir, Salmonella paratyphi, og heill hópur svonefndra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.