Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 84

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 84
202 NÁTTÚRUFR/EÐINGURINN ina í sundur. Sá hnúkur er brattur mjög á allar hliðar og sums staðar hömrum girtur, einkum þó að norðaustan. Sprungur liggja að honurn endilöngum, en ekki áberandi þó. Sennilega er lmúkur þessi eldfjall frá jökultíma. Af norðausturhorni hans er hið bezta útsýni yfir austurgígina í Rauðhólaröðinni. Það eru geysimikil eldvörp og er svo að sjá sem meginhraunstraumarnir, sem fallið hafa um dalinn milli Bratta- háls og Kálfafellsheiða, séu úr þessum gígum komnir (10. mynd). Næstaustasti gígurinn er þeirra mestur, sporöskjulagaður og tvö- faldur. Hefur hrauntjörn verið í honum á lokaþætti gossins, og að endingu hefur hraunið sigið niður í gosopið, svo eftir verður niður- fall nokkurra metra djúpt. Á vegg þess hefur veðrunin gert hinar furðulegustu kynjamyndir. Hraun hefur aðallega runnið úr þess- um gíg suðaustanmegin. Austasti gígurinn er nokkru minni og hefur verið opinn á þeim stað, er að jöklinum snýr, og líklega hafa frá honum legið hrauntraðir miklar. Báðir hafa þessir gígir án efa aðallega gosið hrauni. Hrauntraðirnar eru nú að mestu fylltar sandi og sandur hylur nú botn austasta gígsins. Mjög eru hraunin á þess- um slóðum nú orðin sandorpin og ekki sér í hraun neins staðar við jökulinn norðaustur af gígaröðinni. Jökullinn hefur, þegar hann náði lengst fram, lagzt fast að gígunum og er jaðarurð frá honum hátt uppi í þeim. Ekki hefur hann þó orkað með að af'laga þá neitt. Eins og áður er drepið á er önnur gígaröð samhliða þess- ari rétt við syðsta misgengið. Hygg ég það raunveruleg eldvörp, því við einn þeirra vottar fyrir hrauntröðum. Brunná kemur undan jöklinum allaustarlega og fellur svo suð- vestur um hraun og sanda. Milli Rauðhóla og Brattaháls annars vegar og Kálfafellsfjallsenda og Núpafjallsenda hins vegar er nær óslitin hraunbreiða að fráteknum allstórum hólma, sem virðist úr grágrýti. Nær þessi hraunbreiða alla leið austur að Gæsabringum og inn með jöklinum að austan. Þaðan hefur svo hraun fallið niður Djúp- árdal og er það sama hraun, sem niðri í byggð gengur undir nafn- inu Rauðabergshraun. Það hefur fallið eftir gljúfri Djúpár og breiðzt út um láglend- ið fyrir neðan og sameinazt Jrar hrauni, sem runnið hefur frá Rauðhólum niður milli Dalfjalls og Kotafjalls. Hraun Jtetta hefur runnið inn í livern krók og kima þar neðra, inn í hvamma austan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.