Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 108
220
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Seigar langar trefjar í mónum stafa venjulega frá fífu, horblöðku
eða elftingu.
Nú á dögum vex ekki skógur eða kjarr í íslenzku mýrunum. Svo
liefur þó áður verið — þegar loftslag var hlýrra en nú. Það sýna
lurkalögin tvö, sem hvarvetna er að finna í mýrunum. Þessir lurkar ,
eru þó ekki af stórvaxnari trjám en þeim, sem nú vaxa í íslenzk-
um birkiskógum. Annað sérkenni íslenzku mýranna er afmörkuð
öskulög, sem finnast í flestum mýrum og stafa frá eldgosum á mynd-
unartíma þeirra.
Hámýrar með lningumyndað yfirborð, líkastar skál á hvolfi að
lögun, eru algengar í nágrannalöndum okkar, t. d. á frlandi og
Þýzkalandi og einnig á Norðurlöndum, en eru ekki til hér á landi.
Efri hluti þessara mýra er myndaður af svarðmosa (Sphagnum).
Svarðmosi er að vísu til hér, en hefur ekki náð að verða ríkjandi
jurt í mýrunum. f.ágmýrar hafa oft breytzt í hámýrar, þegar þær
hækkuðu. Svarðmosinn getur sogað í sig mikið vatn og kemst af
með litla steinefnanæringu og hagnýtir því bezt skilyrðin, þegar
mýrarnar hækka og steinefni hætta að berast til þeirra frá landinu
umhverfis.
Þetta skýrir ef til vill hvers vegna hámýrar hafa ekki orðið til
hér: íslenzku mýrarnar eru steinefnaríkar og vöxtur þeirra hefur
verið mjög hægfara. Þær hafa ekki náð að þróazt í hámýrar.
I efri lögum hámýra er mosamór, sem er gerður nær eingöngu
úr svarðmosa; liann er léttur í sér og ljós að lit, en neðar er dökk-
ur stararmór. Sem verzlunarvara er mosamórinn yfirleitt miklu verð-
meiri en stararmór. Verð á mómylsnu úr mosamó getur verið allt
að 40 sinnum liærra en á mó til eldsneytis, miðað við þyngd.
Aska í hámýrum er mjög lítil, oft ekki nema 1—2% af þurrefni.
Hitagildi er um það bil 5200 kcal/kg í lífrænu efni. Aska í svart-
mó eða stararmó er yfirleitt hærri, oft um 10—12% af þurrefni.
í íslenzkum mó er aska oftast mun meiri eða 20—30%. Aska í món-
um stafar sumpart frá jurtunum sjálfum (lífræn aska), sumpart frá
leir og sandi, sem borizt hefur í mýrina (steinefnaaska), og í ís-
lenzku mýrunum einnig frá eldgosum, sem orðið hafa á myndunar-
tíma þeirra.
Hitagildi í stararmó er um það bil 5700 kcal/kg í lífrænu efni
og gildir það einnig um íslenzka móinn. Hér á landi er á stöku stað
til mór með hitagildi um og yfir 6000 kcal/kg. Þetta á þó aðeins