Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 146
264
N ÁT T Ú R U F RÆ ÐINGURINN
c. Að gangast íyrir útgá£u náttúrufræðilegra rita.
d. Að vinna að eflingu náttúruverndar.
4. gr.
Félagar geta allir orðið, hvort sem er hér á landi eða erlendis, með þeim
skilyrðum, er hér greinir:
a. Ársfélagar, þeir, sem greiða árlegt félagsgjald.
h. Heiðursfélagar og kjörfélagar, þeir, sem kjörnir eru á aðalfundi eftir til-
lögum stjórnarinnar.
Árgjald og breytingar á Jrví er ákveðið á aðalfundi.
5. gr.
Félagsgjald sitt skal hver nýr félagsmaður greiða við inngöngu í félagið.
Annars skal árgjaldið greilt fyrir lok marzmánaðar ár hvert.
6. gr.
Fimm manna stjórn sér um framkvæmdir félagsins og annast öll málefni
þess. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn
sérstaklega, en stjórnin skiptir með sér verkunt að öðru leyti. Annað árið ganga
úr stjórninni formaður og tveir aðrir stjórnarmenn, en hitt árið tveir stjórnar-
menn. Kosnir eru tveir varamenn í stjórnina árlega, til eins árs.
7. gr.
Aðalfund félagsins skal halda í febrúar ár livert, og skal dagskrá hans vera
sem liér segir:
a. Skýrt frá helztu framkvæmdum á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
c. Kosin stjórn og tveir endurskoðendur reikninga með skriflegri kosningu.
Auk þess séu kosnir tveir varamenn í stjórn og einn varaendurskoðandi.
d. Onnur mál.
Aðalfund skal boða bréflega með hæfilegum fyrirvara þeim félagsmönnum,
sem búa í Reykjavík og nágrenni. Aðalfundur er lögmætur, ef löglega er til
hans boðað. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti úrslitum í öllum máfum
öðrum en þeim, er varða lagabreytingar. 'l'il þess að lagabreytingar öðlist gildi,
þurfa þær að vera samjtykktar með minnst 2/3 hluta atkvæða.
8. gr.
Félagið gelur út tímaritið Náttúrufræðinginn, er félagsmenn £á ókeypis. I
honum skal hvert ár birta skýrslu um starfsemi og bag félagsins og félagatal
fimmta hvert ár.
9. gr.
Þeir, sem gerzt liafa ævifélagar fyrir aðalfund 1969, geta eftir eigin vali
fengið árgang Náttúrufræðingsins lyrir y4 árgjalds, eða sérprentun af skýrslu
félagsins ókeypis.