Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 106
lítið og allt þakið hrauni. Það verð-
ur að teljast óhugsandi að hraun frá
Rauðhólum hafi runnið austur í og
niður Djúpárdal (Jón Jónsson 1970).
Sömuleiðis sýnist harla ólíklegt að
hraun frá Eldgíg einum saman hafi
getað náð að renna alla leið vestur
fyrir Kálfafellsfjallsenda. Þá er einn
möguleiki eftir og hann er sá að svæð-
ið milli Eldgígs og Rauðhóla hafi
verið íslaust á þeim tíma, er þarna
gaus og séu hraunin komin frá gíg-
um, sem nú eru komnir undir jökul,
en tilheyrðu Rauðhólaröðinni ogvoru
virkir um leið og Rauðhólar og Ekl-
gígur.
Það er nú vitað að fyrir um 5000
árum (Jón Jónsson, 1960) voru jökl-
ar verulega minni en þeir eru nú.
Það sýnist því líklegt að þessi hraun
hafi orðið til fyrir svo sem 3800 ár-
um og verður síðar gerð grein fyrir
á hvaða rökum sú skoðun er reist.
Með hliðsjón af jjessu sýnist mér lík-
legast að rnilli Eldgígs og Rauðhóla
sé röð gíga, sem nú eru huldir jökli
og að Fossahraun sé þaðan komið.
Benda má á það, að jökullinn þarf
varla að styttast nema um svo sem
2,5—3 km, þar sem mest er til Jjess að
lína, sem liugsast tengja Rauðhóla og
Eldgíg, verði íslaus.
Austasti gígurinn í Rauðhólum vest-
an við jökulinn er hringlaga hraun-
gígur um 360 m í þvermál og tvö-
faldur. í lok gossins hefur hrauntjörn
verið í gígnum og brotnað niður yfir
gosrásinni svo kringum hana eru nú
lóðréttir hamraveggir um 3 m háir.
Botn gígsins er nú þakinn sandi svo
ekki sést hversu djúpt niðurfallið hef-
ur upprunalega verið. Hrauntraðir
hafa legið út úr þessum gíg til norð-
austurs og má enn sjá móta fyrir þeim
en rnikill sandur hefur borist í Jrær
og hraunið þar austur og suður af.
Smágígur hefur verið rétt þar sem
hraunrásin liggur út úr aðalgígnum.
Jökulkvísl hefur síðar runnið rétt
austan við gíginn og fallið í Eiríks-
fellsá, en er nú horfin. Rétt norðan
við farveginn er lítið móbergsfell,
ssm jökullinn liggur frarná. Vera má
að jjað sé hið rétta Eiríksfell Jrví aust-
an undir Jjví eru upptök Eiríksfells-
ár. Auðsætt er að jökullinn hefur
gengið fram og yfir hraunin, sem nú
eru mjög sandorpin og lagst hefur
hann upp að gígnum að norðaustan
en ekki megnað að færa hann úr stað
eða aflaga svo nokkru nemi, aðeins
skilið eftir smávegis urðarhrúgu norð-
an í honum.
Næsti gígur vestan við Jrennan er
feiknamikið eldvarp, sem ekki gefur
eftir stærstu gígunum í Eklborgarröð-
unum vestan við Laka. Hann er rösk-
lega 1 km á lengd í sprungustefnu,
nær um 550 m Jsvert yfir, sporöskju-
lagaður og um 25 m hár yfir sléttuna
í kring. í gígskálinni hefur verið
hrauntjörn, en eftir að gosi lauk hef-
ur myndast sporöskjulaga niðurfall
yfir gosrásinni, 4—6 m djúpt. Mis-
gengi er eftir gígnum endilöngum
sunnan rnegin við niðurfallið og sig-
ið norðan megin. Þarna hafa Jtví ver-
ið jarðskorpuhreyfingar nokkrar eftir
að gosið varð og sést ]>að raunar víðar
við þessar eldstöðvar. Lítið hraunop
er í suðvesturenda gígsins að utan-
verðu og hefur J>ar myndast skeifu-
lagaður smágígur. Storknaður hraun-
straumur liggur út úr honum til suð-
200